fbpx
Þriðjudagur 24.mars 2026
Fókus

Ragnhildur segir okkur þurfa að útrýma þessu heilkenni strax

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 24. mars 2026 14:30

Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar. Í þeim nýjasta tekur Ragga fyrir Loddaralíðan eða svipahrappsheilkennið (e. Imposter Syndrome).

Segir Ragga okkur sem af því þjáumst þurfa að útrýma heilkenninu sem fyrst.

„Þetta heilkenni lýsir sér í að eigin velgengni er skrifuð á einskæra heppni, góða tímasetningu og jafnvel misskilning. Þau eiga þessa velgengni engan veginn skilið,“

segir Ragga og tekur nokkur dæmi:

„Að fá atvinnutilboð hlýtur að þýðir að fáir sóttu um.

Tíu á prófi þýðir að prófið var mjög létt.

Hrós eru meðaumkun til að vera næs.

Vorkunn til þín fyrir að vera svona glataður.

Þú gerir lítið úr öllu hrósi.

Labbaði á Kilimanjaro…. æi það var fullt af gömlu fólki líka á fjallinu.

Þessi ræða var nú svosem ekki mín besta. Hikaði of oft.“

Að sögn Röggu er hins vegar annað upp á teningnum þegar kemur að velgengni annarra. Við teljum hana afleiðingu af stórkostlegum gáfum, hæfileikum, dugnaði og elju.

„Að sama skapi er loddaralíðan algjör vantrú á eigin gáfur, færni, hæfileika og eiginleika,“ segir Ragga og telur aftur upp dæmi:

„Ég mun klúðra þessu.

Ég er ekki hæf(ur) í þetta verkefni.

Ég get þetta ekki.

Mistök eru lóðrétt afleiðing af leti, aumingjagangi, heimsku og kæruleysi.

Ekki nógu samviskusamur.

Ekki nógu duglegur.

Ekki nógu gáfuð.

Ekki nógu undirbúin.

Gagnrýni er staðfesting á hörmunginni sem þú ert sem mannskepna.

Svo er rúsínan í SS pylsunni (eða pulsunni) að nú mun komast upp um þig og annað fólk uppgötva hversu mikil sóun á súrefni þú ert.

Nú kemst upp um mig.

Nú verð ég afhjúpuð sem brandari ársins.

Nú fatta þau að ég ég veit ekki neitt.“

70% glíma við loddaralíðan á einhverjum tímapunkti

Ragga nefnir að 70% fólks hefur upplifað svikahrappssyndróm eða loddaralíðan á einhverjum tímapunkti. Loddaralíðan finnist í öllum stéttum, kynjum og hjá fólki á öllum aldri. Tilfinningarnar sem við glímum við tengslum við svikahrappsheilkennið geta verið skömm, sjálfstraust í molum, streita, kvíði, kulnun, depurð og fleira.

Loddaralíðan takmarkar þig í að sækjast eftir tækifærum eða næra áhugasviðin, því þú ert auðvitað ekki nógu góð(ur) fyrir nokkurn skapaðan hlut

Til að komast yfir svikahrappsheilkennið gefur Ragga góð ráð:

  • Virkjaðu rökhugsunina og spurðu sjálfan þig á hvort þú værir að njóta velgengni í starfi, frama, eða vinskap fyrir einskæra tilviljun.
  • Myndirðu segja vini eða vinkonu að þau væru gjörsneydd öllum hæfileikum, eiginleikum og styrkleikum. Að tækifæri í þeirra lífi megi skrifa á hreinræktaða heppni.
  • Talaðu eins við sjálfan þig og vini þína.
  • Skrifaðu niður 5-10 hluti sem þú hefur afrekað og fylla þig stolti og lestu yfir daglega.
  • Skrifaðu niður hvað þér hefur verið hrósað fyrir og lestu yfir daglega.
  • Normalíseraðu tilfinningar þínar með að segja þær upphátt.

Hafðu gott stuðningsnet og taktu upp tólið á vini og vandamenn og segðu þeim þegar þinn innri loddari er að garga bull og vitleysu. Þeir ættu að geta hrist hann af þér og minnt þig á að þú hefur hæfileika, eiginleika og styrkleika sem hafa stuðlað að þinni velgengni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“

Óvænt uppákoma í gærkvöldi þegar leikhúsgestur ákvað að siða leikarana til – „Þú kemur ekki á næstu sýningu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Staðin upp eftir fallið

Staðin upp eftir fallið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“

Ragnhildur hraunar af kaldhæðni yfir mjónulúkkið sem er að ryðja sér til rúms – „Hvetur líka feitabollurnar til að hora sig niður“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið

Þekkt tónlistarkona gerði óhugnanlega uppgötvun á heimili sínu – Sjáðu myndbandið