fbpx
Laugardagur 13.desember 2025
Fókus

Grindavík lætur engan ósnortinn –   „Okkur langar bara að vera heima hjá okkur“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 5. desember 2024 10:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimildaþáttaröðin Grindavík eftir Garðar Örn Arnarson og Sigurð Má Davíðsson hefur göngu sína sunnudaginn 29. desember. Um er að ræða heimildaþáttaröð í sex hlutum.

Í þáttunum er íbúum Grindavíkur fylgt eftir í heilt ár eftir að hörmulegar náttúruhamfarir leiða til þess að bæjarbúum er gert að flýja heimili sín. Körfuboltalið Grindavíkur varð að sameiningartákni bæjarins og leikir liðsins um leið að samverustund fyrir Grindvíkinga að hittast og njóta samveru hverra annarra. Þættirnir taka á upplifun Grindvíkinga a þessu erfiða ári i gegnum körfuboltalið bæjarins.

Grindavík er ekki eingöngu íþróttaþættir, heldur þættir um fólk sem þarf að takast á við þá erfiðu staðreynd að verða flóttamaður í eigin landi og því sé meinað að leita aftur til sinna uppeldisstöðva.

  Við upplifðum þarna að við værum svona límið í samfélaginu, segir Ingibergur Þór Jónasson formaður körfuknattleiksdeildar UMFG. 

  Okkur langar bara að vera heima hjá okkur, segir Ólafur Ólafsson fyr­irliði karlaliðs Grinda­vík­ur í körfuknatt­leik.

Maður var neyddur að koma sér í burtu og fara eitthvað annað. Og þú varst ekkert endilega gripinn í því að redda því, segir Jón Gunnar Margeirsson.

Íþróttir skipta okkur bara ótrúlega miklu máli. Þetta er það sem við sækjum okkar identity svolítið í og við erum mjög stolt af því að vera íþróttabær, segir Bryndís Gunnlaugsdóttir.   Er ég bara að fara að missa allt?

Framleiðsla er í höndum Garðars, Sigurðar og Stöðvar 2 Sports.

Aðstoð við framleiðslu: Egill Birgisson

Obbosí sér um alla eftirvinnslu á þáttunum

Yfirumsjón yfir eftirvinnlsu: Freyr Árnason

Grafík: Leó Þór Lúðvíksson

Litaleiðrétting: Gísli Brynjólfsson

Tónlist: Halldór Gunnar Pálsson

Klipping: Kári Jóhannsson & Sigurður Kr. Ómarsson

Kvikmyndataka: Sigurður Már Davíðsson

Leikstjórn: Garðar Örn Arnarson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Salah snýr aftur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins
Fókus
Fyrir 4 dögum

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“