fbpx
Mánudagur 11.desember 2023
Fókus

Nú er hægt að ganga í hjónaband í Ráðhúsi Reykjavíkur

Jakob Snævar Ólafsson
Þriðjudaginn 6. júní 2023 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsætisnefnd borgarstjórnar Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum fyrir helgi uppfærslu á reglum um hjónavígslur í Ráðhúsi Reykjavíkur en reglurnar voru fyrst staðfestar 28. apríl síðastliðinn. Uppfærslan snýst einkum um að leyfa hjónavígslur í Ráðhúsinu á laugardögum.

Segir í reglunum að hægt sé að leigja tvo sali á þriðju hæð í norðurhluta Ráðhússins, ásamt rými í Tjarnarsal, fyrir hjónavígslur. Hægt er að leigja salina frá kl. 10:00-15:00 alla daga nema þriðjudaga og sunnudaga.

Leiguverð er 30.000 krónur, án virðisaukaskatts, nema á laugardögum þá er það 40.000 krónur, fyrir utan virðisaukaskattinn.

Athöfnin má taka að hámarki eina klukkustund og ekki geta verið fleiri en 50 gestir viðstaddir.

Segir í reglunum að leyfilegt sé að skála að athöfn lokinni en ekki sé leyfilegt að vera með hrísgrjón, sápukúlur, glitpappír (konfetti) og þess háttar. Segir einnig að hægt sé að leigja glös í Ráðhúsinu, samkvæmt gjaldskrá, sé þess óskað.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Seldi húsið til að fara í þriggja ára siglingu – Eyðilögð eftir að ferðinni var aflýst

Seldi húsið til að fara í þriggja ára siglingu – Eyðilögð eftir að ferðinni var aflýst
Fókus
Í gær

Ættleiddu og urðu svo ófrísk – „Fjögur börn undir fimm mánaða aldri er mikil áskorun“

Ættleiddu og urðu svo ófrísk – „Fjögur börn undir fimm mánaða aldri er mikil áskorun“
Fókus
Í gær

Hélt hún hafði lent í klóm svikahrapps þar til hún komst að sannleikanum

Hélt hún hafði lent í klóm svikahrapps þar til hún komst að sannleikanum
Fókus
Í gær

Mikil óánægja með verðhækkun Disney Plus – „Áskrift sagt upp, bless“

Mikil óánægja með verðhækkun Disney Plus – „Áskrift sagt upp, bless“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Taka átti Davíð af foreldrum hans af því honum gekk illa að lesa

Taka átti Davíð af foreldrum hans af því honum gekk illa að lesa
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ari Bragi og Dóróthea eiga von á syni

Ari Bragi og Dóróthea eiga von á syni