Það er greinilegt að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra er mikill húmoristi en hún ákvað síðastliðinn fimmtudag að hrekkja félaga sína í Sjálfstæðisflokknum. Áslaug mætti nefnilega með manni á jólahlaðborð Sjálfstæðisflokksins en hún tilkynnti flokksfélögum sínum að um kærasta sinn væri að ræða.
Vísir fjallaði um málið og ræddi við Áslaugu sem segir hrekkinn hafa heppnast vel. Hún segist hafa ákveðið að gera þetta því hún fær reglulega spurningar frá fólki um hjúskaparstöðu sína en hugmyndina fékk hún frá frænku sinni sem spilaði eitt sinn sama leik.
Maðurinn sem mætti með Áslaugu er leikari og var undirbúin góð baksaga fyrir „parið“ til að gestirnir í jólahlaðborðinu myndu örugglega trúa þeim. Það var hins vegar bara fyrsti fasinn í hrekknum. „Fyrst um sinn lék hann stórkostlegan leik og allir kunnu mjög vel við hann. Það var auðvitað mikilvægur grunnur að því sem seinna kom,“ segir Áslaug í samtali við Vísi en þegar leið á veisluna fór „kærastinn“ að haga sér illa og valda fjaðrafoki í veislunni.
„Gestirnir voru sumir orðnir verulega óánægðir með ráðahaginn og byrjuð að leggja á ráðin um hvernig það ætti að hjálpa mér út úr þessu. En þá var grínið líka toppað og því stoppað,“ segir Áslaug við Vísi.