fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Hún sendi óvart skilaboð á rangan aðila og kom þar með upp um brjóstahaldarabragðið

Fókus
Föstudaginn 28. janúar 2022 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Líklega er fátt vandræðalegra en að senda óvart skilaboð á rangan einstakling. Sérstaklega þegar efni skilaboðanna er viðkvæmt og persónulegt.

Maður nokkur á TikTok lendi í því að fá skilaboð sem ekki voru ætluð honum. Hins vegar varð hann ekkert sérstaklega súr með það.

Maðurinn, Kris, var á stefnumóti með konu og vörðu þau nóttinni saman. Þegar konan yfirgaf heimili hans um morguninn fékk hann skilaboð frá henni en sá strax að þau höfðu greinilega ekki verið ætluð honum.

Konan hafði ætlað að senda vinkonu skilaboð til að segja frá stefnumótinu.

„Ég er bara að ganga út frá honum núna. Ég skildi eftir brjóstahaldarann minn svo hann neyðist til þess að senda mér aftur skilaboð. Haha, ég held ég sé ástfangin?? Hvernig var kvöldið þitt?“ 

Kris var fljótur að svara.

„Uh kvöldið mitt var mjög gott… ég eyddi því með þér. Ég reikna með að þessi skilaboð hafi ekki átt að fara til mín?“ 

Því svaraði konan:

„Omg. Hunsaðu, hunsaðu, hunsaðu. Ég skammast mín rosalega.!!“ 

Kris sýndi síðan fylgjendum sínum brjóstahaldarann sem konan skildi eftir, og setti hann meira að segja á höfuðið.

Myndbandið hefur vakið þó nokkra athygli, þá sérstaklega þar sem ljóst var að konan hafði með vilja skilið brjóstahaldarann eftir til að tryggja að Kris hefði aftur samband.

„Þetta er eitthvað sem ég myndi gera. Ég skildi tannburstann minn einu sinni viljandi eftir,“ skrifar einn. 

„Þetta virkaði samt er það ekki? Þú sendir henni skilaboð. Sniðug kona,“ skrifar annar. 

„Hvað ef hún ætlaði í alvörunni að senda þetta á þig og vissi nákvæmlega hvað hún var að gera,“ spyr einn. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar