Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir, betur þekkt sem GDRN, og kærasti hennar Árni Steinn Steinþórsson hafa eignast sitt fyrsta barn. Guðrún greinir frá tíðindunum með færslu sem hún birti á samfélagsmiðlinum Instagram í dag.
„Hann er mættur og hann er fullkominn,“ skrifar Guðrún og birtir mynd af frumburðinum. Hamingjuóskunum rignir nú yfir litlu fjölskylduna í athugasemdunum við myndina.
Fókus óskar Guðrúnu og Árna innilega til hamingju með drenginn.
View this post on Instagram