fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Láta 28 ára aldursmun ekki stoppa sig – Kynntust á YouTube og giftu sig skömmu síðar

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 8. apríl 2022 19:30

Darin og Sarah - Mynd: Mediadrumworld.com/SarahAndDarin

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þau Sarah Henderson, 26 ára, og Darin, 54 ára, náðu strax vel saman þegar þau kynntust í miðjum heimsfaraldrinum, í október árið 2020. Sarah og Darin kynntust í gegnum YouTube og einungis þremur mánuðum síðar voru þau búin að gifta sig. Daily Star fjallar um þetta ótrúlega ástarsamband þeirra.

Samtal þeirra byrjaði þegar Darin sá athugasemd frá núverandi eiginkonu sinni á myndbandi á YouTube. Hann setti sig í samband við hana og fljótlega urðu þau góðir vinir. Þau segjast hvorugt hafa verið að leita að ástarsambandi á þessum tíma en fljótlega urðu þau aðeins meira en bara vinir.

Þau hittust í fyrsta skipti mánuði eftir að þau kynntust og stuttu síðar voru þau trúlofuð. Það var Sarah sem spurði Darin hvort hann vildi giftast sér, hann sagði já og athöfnina héldu þau þremur mánuðum eftir að Darin sá athugasemdina sem Sarah skrifaði á YouTube.

28 ár eru á milli þeirra í aldri en þau hafa þó litlar áhyggjur af því. „Sumt fólk segir að þetta myndi aldrei virka, að Darin verði gamall og að ég þurfi að hugsa um hann eða að hann deyji og ég verði ein,“ segir Sarah.

„En það getur gerst í hvaða sambandi sem er. Þegar ég er með honum þá hvorki sé ég né finn fyrir neinum aldursmuni. Ég sé bara einhvern sem er með sömu gildi og sama tilgang og ég. Ég er glöð að fá að vera með einhverjum sem vill sömu hluti og ég. Framtíðin okkar er björt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“

„Ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið dýrlingur, en ég var ekki nógu heimskur til að eyðileggja fjölskylduna okkar“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta