Jaxon-James Ayers fæddist átta vikum fyrir tímann. Hann kom ekki aðeins foreldrum sínum á óvart með því að koma fyrr í heiminn heldur einnig með því að fæðast alveg ótrúlega hárprúður.
Jaxon-James er þriggja mánaða í dag og hefur hár hans vaxið með ótrúlegum hraða, ekki aðeins á höfðinu heldur um allan líkama.
Jaxon-James er með sjaldgæfan sjúkdóm sem nefnist insúlín mótspyrna (e. hyperinsulinism). Hann þarf að taka lyf við sjúkdómnum og ein aukaverkunin er aukinn hárvöxtur sem þýðir að hann sé með mun meira hár en jafnaldrar sínir.
Móðir hans, Shannon Ayres, segist elska að sýna hárprúða drenginn sinn en viðurkennir að viðbrögðin sem hún hefur fengið við myndunum af Jaxon-James á samfélagsmiðlum hafa komið henni á óvart. LadBible greinir frá.
Því miður voru ekki allar athugasemdirnar jákvæðar en nokkrir netverjar sökuðu Shannon um að breyta myndunum í myndvinnsluforriti.
„Ég bjóst alls ekki við því að myndirnar af honum myndu slá svona í gegn […] Ég er stundum sökuð um að teikna á hann augabrúnir og að nota „filter“ fyrir harið hans. Í fullri hreinskilni þá finnst mér það bara fyndið. En viðbrögðin eru yfir höfuð jákvæð,“ segir hún.