Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, fagnaði 31 árs afmæli sínu í gær á nýrri skrifstofu í húsi menntamálaráðuneytisins, en þar hefur henni verið fundinn staður þar til ráðuneyti hennar verður formlega búið til á nýju ári.
Eins og við var að búast rigndi afmæliskveðjum yfir ráðherrann unga á afmælisdaginn í bland við óskum um velgengni og farsæld í nýju ráðuneyti.
Áslaug þakkaði fyrir kveðjurnar í morgun á Instagram síðu sinni. Ein kveðja stóð þó upp úr, að sögn Áslaugar, og birtir hún mynd af kveðju Kára Stefánssonar til hennar:
„Til hamingju með daginn þinn duglegasti unglingur í sögunni allri,“ skrifaði Kári á Facebook síðu Áslaugar.
Þó unglingur sé kannski djúpt í árina tekið hjá Kára er Áslaug yngst ráðherra ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og meðal allra yngstu ráðherra Íslandssögunnar.
Raunar var það ekki aðeins Áslaug sem sló met í unglingaflokki á þessu keppnistímabili, en Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varð síðastliðna helgi yngsti utanríkisráðherra í sögu lýðveldisins.
Skjáskot af færslu Áslaugar má sjá hér að neðan.