fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

„Börn eru ekkert of ung til að vita af fjölbreytileikanum“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 20. desember 2020 11:00

María Rut og Ingileif Friðriksdóttir. Mynd/DV Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin María Rut og Ingileif eru höfundarnir á bak við bókina Vertu þú! Þær eru þakklátar fyrir góðar viðtökur og vona að bókin geti hjálpað foreldrum að ræða við börnin sín um fjölbreytileikann.

María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir eru mörgum Íslendingum kunnar. Fjölmiðlakonan Ingileif hefur verið á sjónvarpsskjáum landsmanna um árabil og er nýgengin til liðs við skapandi stofuna Ketchup Creative. María Rut er aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir, þingmanns Viðreisnar. Þær hafa verið ötulir talsmenn fyrir baráttu hinsegin fólks og halda einnig úti hlaðvarpsþættinum Raunveruleikinn. Nýlega gáfu þær út bókina Vertu þú! þar sem þær segja litríkar sögur af fjölbreytileikanum og hvetur til fordómaleysis og víðsýni.

Þekkja það af reynslunni

Í bókinni er fjallað um hinsegin fólk, trans börn, börn af erlendum uppruna, fatlað fólk, fjölbreytt fjölskylduform og fleira. Bókin var skrifuð með þessi börn í huga, sem bregða út af norminu á einhvern hátt, en hún var líka skrifuð fyrir foreldra sem vilja ræða við börnin sín um fjölbreytileikann en vita ekki hvernig best er að bera sig að. Þær þekkja það af eigin reynslu sem mæður tveggja drengja.

„Þegar sá eldri var að byrja í grunnskóla voru svo margir foreldrar barna í kringum hann, sem langaði að tala við börnin sín en vissu ekki hvernig þeir ættu að fara að. Við ákváðum að þessi bók gæti þá verið ágætis byrjun á samtali og ákváðum að vera bara með bók sem segir hlutina nákvæmlega eins og þeir eru. Því yfirleitt þarf bara að segja börnunum hlutina og þau skilja þá, þau fæðast ekki með neina fordóma,“ segir Ingileif og María Rut bætir við:

„Ef við höldum áfram að tipla á tánum í kringum raunveruleikann og í kringum samfélagið eins og það er saman sett, því við erum fjölbreytt, við erum ólík, við erum alls konar. Ef við erum alltaf hikandi gagnvart því að það sé staðreynd, þá búum við til þessar jaðarsettu hugmyndir um að fólk sé öðruvísi en eitthvert norm. Okkur langaði að skrifa bókina frekar hispurslaust til að fá líka fullorðna fólkið til að skoða eigin fordóma og kannski eigin ótta við að taka þessi samtöl. Því þau eru kannski alin upp við meiri jaðarsetningu en kynslóðin sem á eftir þeim kemur.“

Mynd/DV Hanna

Sagan um Ronju

Í bókinni er saga um trans stelpuna Ronju. María Rut og Ingileif segja að þær hafa velt því lengi fyrir sér hvernig væri best að segja söguna hennar Ronju, þar til þær áttuðu sig á því að þær ættu bara að segja hana alveg eins og hún er.

„Við vorum búnar að skynja að foreldrum þætti þetta erfitt viðfangsefni til að tala um við börnin sín. Annaðhvort taldi fólk þetta vera of flókið eða börn væru of ung til að vita um trans fólk. En börn eru ekkert of ung til að vita af fjölbreytileikanum og því fyrr sem þau vita að við erum öll ólík því betra,“ segir Ingileif og bætir við að það sé best að segja hlutina alveg eins og þeir eru svo börn skilji.

María Rut segir að það sé þó alveg mannlegt að þykja þessi umræðuefni erfið að einhverju leyti. „Við erum alin upp með að þetta sé kannski frekar óþægilegt umræðuefni, því það á það til að vera svo mikill feluleikur og skömm í kringum þetta,“ segir hún og bætir við að þeirra draumur sé að með aukinni og opinni umræðu þá þurfi það ekki að vera svona mikill hjalli fyrir fólk að fá að vera það sjálft.

Aðspurðar hvenær þær telja vera rétta tímann til að byrja að ræða fjölbreytileikann við börn segja þær að það fari eftir þroska barnsins. „Foreldrar skynja þroska barna sinna. Ég held að þau skilji þetta mikið fyrr en við gerum okkur grein fyrir. En auðvitað setur maður hlutina í ólíkan búning eftir þroska,“ segir María Rut.

Ekki of mikið

María Rut og Ingileif kippa sér lítið upp við gagnrýnisraddir sem telja bókina og skilaboð hennar vera „of mikið“.

„Ef einhverjum finnst það að tala um raunveruleikann vera „of mikið“ þá veit ég ekki alveg hvar við erum stödd. Það að neita að tala um einhverja hluti við börn, að ætla bara að sneiða fram hjá því að fjölskylduform séu mismunandi til dæmis, það er eins og ætla að sneiða fram hjá því að sumir eru rauðhærðir eða eitthvað álíka. Hinsegin fjölskyldur eru hluti af mannflórunni, alveg eins og trans fólk. Það að tala ekki um það er svo mikil fáfræði. Með því að tala um þetta getum við eytt tabúinu og fordómum,“ segir Ingileif.

„Þetta snýst um lífshamingju. Þetta snýst um að fá að vera maður sjálfur í eigin skinni og hafa áhuga á því sem maður hefur áhuga á, og það meiðir ekki annað fólk. Það tekur ekkert pláss af öðrum. Þessi bók er vonandi efniviður fyrir foreldra sem hafa áhuga á að tala um fjölbreytileika við börnin sín en vita ekki hvar þeir eiga að byrja,“ segir María Rut.

Viðtökurnar frábærar

Það er greinilegt að það hefur verið mikil eftirspurn á íslenskum markaði fyrir svona bók. Vertu þú! komst á metsölulista Eymundsson og var uppseld um tíma, en sem betur fer er ný sending komin til landsins.

Þrátt fyrir þessar ótrúlegu viðtökur munaði litlu að bókin hefði aldrei komið út. Fyrst þegar Ingileif og María Rut fengu hugmyndina og vildu framkvæma hana, þá fengu þær þau svör að það væri þegar ein „svona“ bók á markaðinum og markaðurinn væri því „mettaður“.

Þær viðurkenna að þeim hafi þótt þessi viðbrögð undarleg, þar sem það eru mörg þúsund barnabækur um hið hefðbundna fjölskylduform, en aðeins ein um hinsegin fjölskyldur.

„Um leið og við áttum fund með Sölku bókaforlagi þá small þetta allt og hefur gengið ótrúlega vel,“ segir María Rut.

María Rut og Ingileif segja að það hafi kveikt á neista að skrifa bókina og að viðtökurnar hafa gefið þeim hvatningu til að halda áfram. Þær segja það því ansi góðan möguleika á að landsmenn megi eiga von á meira efni frá þeim í framtíðinni, það er allavega ekki útilokað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta

Forsetaframbjóðandinn sem gerðist miðill – Hannes lætur efasemdaraddirnar sem vind um eyru þjóta
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kanye West ætlar í klámið

Kanye West ætlar í klámið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda

Leitar sér hjálpar vegna Ozempic notkunar eftir ákall áhyggjufullra aðdáenda