Hér koma nokkrar skotheldar hugmyndir sem gætu slegið í gegn hjá „allt“ fólkinu. Það er að segja fólki sem á allt – eða segist ekki vanta neitt. Nú eða lufsaðist ekki til þess að skila inn óskalista.
Hvernig væri að styðja við íslenskt handverk og gefa gott grín um leið? Hannyrðasnillingurinn Dóra Lind Vigfúsdóttir selur handsaumaðar myndir í Jólaþorpinu í Hafnarfirði auk þess sem hægt er að panta í gegnum síðu hennar á Instagram – Dóra blessi heimilið. Það er aldrei til of mikið grín!
Verð: 5.500 krónur.
Public House er með botnlausan bröns föstudaga til sunnudaga. Allur matur sem þú getur í þig látið í tvær klukkustundir.
Þú getur keypt gjafabréf án drykkja fyrir 4.990 krónur eða með drykkjum á 5.990 krónur.
Það er fátt betra í dimmum janúar og febrúar en að liggja í heitum potti og mæna upp í stjörnubjart himinhvolfið á meðan eldaður er dásemdar kvöldverður handa þér. Eftir góða máltíð er svo lagst í brakandi hrein rúmföt. Víða má nú gera góð kaup á gjafabréfum upp á hótelgistingar. Hótel Geysir, B59, Rangá, Búðir, Centre Hotels, Ion, Fosshotel Glacier Lagoon sem dæmi eru vinsæl hótel sem bjóða upp á gjafabréf.
Verð frá 19.900 krónum.
Hver elskar ekki gott kaffi og hvað er betra en að fá nýtt og spennandi kaffi í hverjum mánuði til að smakka?
Gefðu vini þínum áskrift að Kaffiklúbbnum, þú getur keypt gjafabréf á kaffiklubburinn.is og valið um þriggja mánaða áskrift á 8.890 krónur, sex mánaða áskrift á 16.990 krónur og eins árs áskrift á 33.990 krónur.
Ef þú vilt gera vel við vin þinn og umhverfið eru þessi ilmkerti frábær lausn. Þegar kertið er brunnið upp er hægt að nota ílátið sem blómapott. Það er gat í botninum, þú tekur bara límmiðann af, setur lokið undir og þá ertu komin með fallegan pott.
Kertin fást í Mjöll, fallegri íslenskri verslun í Hamraborg og á mjoll.is. Minni kertin eru á 3.800 krónur og stærri kertin kosta 6.800 krónur.
Gefðu aðgang að Storytel í jólagjöf. Þar eru þúsundir hljóðbóka sem viðtakandinn getur hlustað á í símanum sínum. Fullkomin gjöf fyrir manneskjuna sem á allt.
Þú getur keypt einn mánuð á 2.790 krónur, þrjá mánuði á 8.370 krónur, sex mánuði á 16.740 krónur og heilt ár á 33.480 krónur.
Þetta sléttujárn eru engu líkt. Stórstjarnan Victoria Beckham segist helst ekki fara út án þess. Járnið er hentugt til að ferðast með en það kemur með mismunandi klóm til að smella á hleðslutækið svo hægt sé að hlaða það hvar sem er í heiminum. Járnið er þráðlaust og hægt að smella því í veskið ef það stefnir í „úfið“ kvöld. Sléttujárnið fæst á hárgreiðslustofum og skuggihar.is.
Verð: 34.900 krónur.
Hægt er að panta áskrift að sokkum og/eða nærbuxum á síðunni smartsocks.is.
Hægt er að panta mismunandi óvissupakka sem innihalda 3 eða 5 pör af „óvissu“ sokkum og/eða nærbuxum. Verð: frá 1.390 krónum á mánuði.
Sannar gjafir UNICEF eru vissulega gjafir sem gleðja og rykfalla ekki uppi í hillu eða þarf að standa í langri biðröð fyrir. Fyrir þá sem eiga í raun og veru allt eða geta keypt sér það sem hugurinn girnist er fallegt að gefa Sannar gjafir frá UNICEF. Slíkar gjafir koma í formi gjafabréfs á tölvupósti svo þær virka einnig vel sem gjafir handa þeim sem búa erlendis en hægt er að senda gjöfina með tölvupósti. Á vefsíðunni sannargjafir.is er hægt að velja úr fallegu úrvali gjafabréfa þar sem hægt er að gefa bágstöddum börnum að borða, skólagögn, hlýjan fatnað og margt fleira. Til dæmis er hægt að kaupa vítamínbætt jarðhnetumauk sem gerir kraftaverk fyrir vannærð börn. Það er tilbúið til neyslu beint úr pakkanum og inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, vítamín og steinefni. Í flestum tilfellum þurfa börn einungis þrjá poka af vítamínbættu jarðhnetumauki á dag í fáeinar vikur til að ná fullum bata.
Gjafirnar kosta frá 919 krónum.
Ef ástvini þínum þykir gaman að prjóna þá er tilvalið að kaupa einn til þrjá mánuði í áskrift að áskriftarklúbbi Garnbúðar Eddu. Í hverjum pakka má búast við garni, einhverju góðu, einhverju nytsamlegu og mögulega skemmtilegum skilaboðum.
Hægt er að skoða nánar á garnbudeddu.is. Mánaðaráskrift kostar 6.500 krónur og þriggja mánaða áskrift kostar 19.500 krónur.