fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

„Væri bara grátandi ef ég héldi tónleika núna“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 3. nóvember 2020 09:57

Bríet Mynd: Stefán

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bríet Ísis Elfar, sem er vinsælasti tónlistarmaður Íslands í dag, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Síðan platan hennar kom út hafa lög hennar átt topplistana á Íslandi vikum saman. Bríet kom mjög ung fram á sjónarsviðið og vakti strax verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína. Í þættinum segir hún ferlið í kringum nýju plötuna hafa verið erfitt og átakanlegt.

„Ég skal bara viðurkenna það að þetta er búið að vera rosalega erfitt af því að þetta er svo langt ferli og svo miklar tilfinningar. Þú vilt ekki meiða neinn og þú ert að fara svo ótrúlega nálægt hjartanu þínu, en þú verður að sleppa þessu, af því að annars ertu að bæla. En ég er ekkert endilega búin að átta mig á því að ég þurfi að syngja þetta það sem eftir er af ævinni, en það skiptir ekki máli. Maður lærir það bara. Ég get ekki gefið eitthvað frá mér sem er ekki beint frá hjartanu. Ég hef gert það og ég veit að ég vil það ekki,“ segir hún.

Haldið sig heima

Bríet segist hafa haldið sig mikið heima hjá sér eftir að platan kom út og að nú sé hún að fara í gegnum tímabil þar sem hún þarf að hlúa að sjálfri sér.

„Ég er bara að fatta núna hvað þetta er búið að vera átakanlegt ferli. Af því að þetta er svo stórt og mikið og mér þykir svo vænt um þessa plötu. Núna er maður búinn að gefa út listaverk og athyglin er öðruvísi núna, af því að fólk vill stærri bita. Ég er auðvitað mjög þakklát fyrir það, en er að venjast því. Þegar fólk er búið að heyra svona mikið persónulegt vill það meira. Mér finnst þetta einhvern veginn búið að vera svolítið erfitt núna, af því að athyglin er öðruvísi. Ég var að semja þessa plötu af því að mér leið svona og ég þurfti að koma þessu frá mér. Mér fannst ég ekki hafa neitt að segja á heila plötu, en svo kom þetta stóra fyrirbæri sem kallast ástarsorg og þá bara dritaðist frá mér þessi plata. En þó að maður hafi átt stórt lag og unnið með frábæru fólki veit maður aldrei hvernig tónlistinni verður tekið,“ segir Bríet.

Mikilvægt að halda sér á jörðinni

Bríet segist vera meðvituð um mikilvægi þess að halda sér á jörðinni þegar vel gengur.

„Maður er endalaust að berjast við egóið sitt og það er erfitt að halda sér á jörðinni þegar allir eru að segja þér hvað þú ert frábær og að gera góða hluti og þess vegna þarf maður að passa mikið upp á sjálfan sig. Ég geri mér fulla grein fyrir því að það verður ekki alltaf þannig að lögin mín séu vinsælust og þess vegna verð ég að halda mér á jörðinni,“ segir hún.

Bríet segist vera á ákveðinn hátt þakklát fyrir að geta ekki haldið tónleika á þessarri stundu, þar sem hún segist hreinlega ekki tilbúin í að spila lögin af nýju plötunni fyrir framan hóp af fólki.

„Ég held ég gæti ekki sungið fyrir framan fólk núna. Ég væri bara grátandi. Þannig að ég held að tímasetningin hafi verið fullkomin. Ég hlakka mikið til að gera það og það mun gerast, en það er gott að það fái aðeins að bíða. Mér er búið að finnast yndislegt að fá að jafna mig aðeins, vera með kaffi uppi í rúmi og spjalla við mömmu. Maður fattar ekki hvað þetta er búið að vera mikið átak að gera plötuna og koma henni út. Maður er að klifra og klifra upp og svo hoppar maður niður og þá kemur eðlilega „crash“ og maður þarf að leyfa því að líða hjá.“

Lærði á gítar 13 ára

Bríet segist ekki endilega hafa ætlað sér að verða tónlistarkona, heldur hafi eitt leitt af öðru og valdið því að nú sé hún á þeim stað sem hún er núna.

„Ég er þrettán ára þegar ég byrja að læra á gítar og var fengin til að spila „Off-Venue“ á Airwawes ári síðar. Eftir þá tónleika var fólk sem vildi vinna með mér og það fór af stað ferli sem er í raun enn í gangi. Mér leið aldrei eins og ég yrði að vera tónlistarkona, heldur fannst bara gaman að taka í gítarinn með pabba. En ég hef alltaf verið svo mikil já manneskja að ég segi bara já ef ég er beðin um að flytja tónlist og það hefur bæði gert mér gott og slæmt. Ég hef stundum hleypt fólki of nálægt mér, en að sama skapi hef ég fengið ótrúleg tækifæri.“

Í þættinum ræða Sölvi og Bríet um tónlistina, ástarsorg, hvað fylgir því að vera landsþekkt, reynslu af svitahofum og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=A8ym9Ne5HI4&t=999s

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar