fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Hverjar eru Jill Biden og Melania Trump?

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Laugardaginn 17. október 2020 19:46

Samsett Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forsetafrúin Melania Trump og kennarinn Jill Biden gætu varla verið ólíkari. Þær eiga þó tvennt sameiginlegt. Eiginmenn þeirra sækjast eftir sömu stöðunni og þær hafa báðar gegnt fyrirsætustörfum. Á meðan Melania gerði það að farsælum ferli, einbeitti Jill sér að náminu og nældi sér í fjórar háskólagráður.

Melania Trump. Mynd/Getty

Melania Trump

Melania Trump er forsetafrú Bandaríkjanna. Hún er fyrsta útlenda konan til að gegna því hlutverki síðan árið 1829.

Menntun og fyrri störf

Melania Trump fæddist Melanija Knavs í Slóveníu þann 26. apríl árið 1970.

Melania lagði stund á arkitektúr og hönnun í háskólanum í Ljubljana í Slóveníu í eitt ár, þar til hún sagði skilið við nám.

Melania Trump byrjaði snemma að starfa sem fyrirsæta.

Þegar Melania var sextán ára gömul hóf hún farsælan feril sem fyrirsæta. Hún breytti eftirnafni sínu í „Knauss“. Þegar hún var átján ára gömul komst hún á skrá hjá ítalskri umboðsskrifstofu og þá byrjaði boltinn að rúlla. Hún hefur setið fyrir á síðum fjölda frægra tímarita á borð við Vanity Fair og GQ.

Melania Trump prýddi forsíðu GQ árið 2000.

Athafnakona

Melania flutti til Manhattan árið 1996 og kynntist núverandi eiginmanni sínum í veislu í september 1998. Þau gengu í það heilaga árið 2005 og eignuðust soninn Barron ári seinna. Fyrir átti Donald Trump fjögur uppkomin börn, þau Donald Trump Jr., Eric Trump, Ivönku Trump og Tiffany Trump.

Melania og Donald Trump árið 1998.

Árið 2010 byrjaði Melania með eigin skartgripalínu, Melania Timepieces and Fashion Jewelry. Hún byrjaði einnig með húðvörulínu sem var til sölu í verslunum víða um Bandaríkin.

Eftir að Melania varð forsetafrú sleit hún sambandi sínu við fyrirtækin líkt og embættið kveður á um, í kjölfarið lögðust vörulínurnar af.

Forsetafrúin talar fimm tungumál: slóvensku, serbnesku, ensku, þýsku og frönsku.

Jill Biden er kennari. Mynd/Getty

Jill Biden

Jill Tracy Jacobs Biden er eiginkona frambjóðanda Demókrata, Joe Biden. Jill Biden er bandarískur prófessor og var varaforsetafrú Bandaríkjanna á árunum 2009-2017.

Fyrrum hjónabönd og börn

Jill fæddist þann 3. júní árið 1951. Hún giftist Bill Stevenson árið 1970 og skildu þau fimm árum seinna. Jill og Joe Biden eiga saman þrjú börn. Líffræðilega eignuðust þau saman eina dóttur, Ashley Biden.

Jill og Joe Biden.

Joe átti tvö börn úr fyrra hjónabandi, drengina Hunter og Beau Biden. Hann missti eiginkonu sína og unga dóttur, þær Neiliu Hunter og Naomi Christinu Biden, í hræðilegu bílslysi árið 1972. Beau Biden lést árið 2015 eftir hetjulega baráttu við heilaæxli.

Jill og Joe Biden hafa verið gift síðan árið 1977, en Joe þurfti að ganga töluvert á eftir framtíðareiginkonu sinni, það tók samtals fimm bónorð. Í viðtali við Vogue sagðist Jill vilja vera alveg viss áður en hún gengi að eiga Joe. Bæði vegna þess að hún vildi ekki að synir Joe Biden myndu missa aðra móður, en einnig vegna þess að hún var ekki viss um hvað sér þætti um að vera í sviðsljósinu. Á þessum tíma var Joe Biden öldungadeildarþingmaður með stóra drauma.

Jill Biden var fyrirsæta þegar hún var í kringum tvítugt.

Nám og starf

Jill tók sér eitt ár í frí frá námi til að sinna fyrirsætustörfum. Hún útskrifaðist með BA-gráðu í ensku árið 1975. Jill vann sem kennari á meðan hún tók mastersgráðu í kennsluréttindum (Masters Of Education), með áherslu á lestur, árið 1981. Sama ár fæddi hún dóttur þeirra hjóna. Hún hætti að vinna í tvö ár til að ala upp börnin þeirra þrjú.

Jill nældi sér svo í mastersgráðu í ensku árið 1987. Hún sneri aftur í skóla á sextugsaldri og fékk doktorsgráðu í menntavísindum árið 2007.

Hjónin Jill og Joe Biden dansa á innsetningarathöfn bandaríkjaforsetans Barack Obama.

Jill Biden hefur kennt við hinar ýmsu menntastofnanir, meðal annars við almenningsskóla (e. public schools) í þrettán ár. Í dag er hún enskuprófessor við almenningsháskóla (e. community college) í Norður-Virginíu í Bandaríkjunum. Hún segist ekki ætla að hætta að kenna þó að eiginmaður hennar verði kjörinn forseti. Hún ætlar að halda áfram að kenna við háskólann, alveg eins og hún gerði í þau átta ár sem hún var varaforsetafrú.

Það þýðir að Jill, enskukennari með fjórar háskólagráður, gæti orðið fyrsta forsetafrúin sem er prófessor. Hún yrði þá einnig fyrsta forsetafrúin til að vera í launaðri vinnu, sem býr í Hvíta húsinu.

Jill sagði eitt sinn: „Að vera kennari er ekki eitthvað sem ég geri, heldur hver ég er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta