fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Jónas áreittur af Vísindakirkjunni: „Ég var látinn leysa frá viðkvæmustu leyndarmálunum“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 1. október 2020 10:30

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jónas Sigurðsson er nýjasti gestur Sölva Tryggvasonar í Podcasti Sölva. Jónas varð vinsæll sem söngvari í Sólstrandargæjunum, sem slógu í gegn með lagið „Rangur Maður“ og sló síðan aftur í gegn mörgum árum síðar með lagið „Hafið er Svart“. Það sem færri vita líklega um Jónas er að hann er afburðamaður í tölvuforritun og vann um árabil fyrir tölvurisann Microsoft. Þar var hann valinn í hóp efnilegasta fólks fyrirtækisins sem áttu að verða framtíðarstjórnendur. Hann segir að það hafi verið frábær tími, en hann byrjaði að efast um allt saman þegar hann sá að markmið fyrirtækisins var í raun eingöngu að skila hagnaði með öllum leiðum. Í tilvistarkreppu er fólk til í að prófa alls konar hluti og Jónas kynntist þarna vísindakirkjunni:

„Svo kynntist ég Vísindakirkjunni og hvað þeir eru öflugir í að reyna að plata fólk. Ég var rosalega leitandi þarna þegar ég bjó í Kaupmannahöfn, ég var með mikinn kvíða sem ýtti mér út í rosalegt sjálfsniðurrif og neikvætt sjálfstal, sem endaði oft með því að ég var alveg búinn á því. Þannig að ég er að labba þarna einhvern tíma niður „Köbmagegade” þegar það kemur að mér kona og segir að ég sé rosalega bjartur og flottur og eigi að koma í persónuleikapróf hjá vísindakirkjunni. Ég var svo leitandi að ég lét til leiðast og þegar ég sagði þeim að ég væri búinn að lesa helstu bækurnar þeirra, þá urðu þau ennþá spenntari að fá mig inn. En ég vissi ekki hvað Vísindakirkjan er rosaleg í að reyna að heilaþvo fólk og eltast við það. Ég var svo örvæntingarfullur á þessum tíma að ég samþykki að fara á námskeið hjá þeim, en svo endar þetta námskeið bara aldrei. Ég er bara kallaður aftur og aftur á fundi og látinn leysa frá viðkvæmustu leyndarmálunum, sem þau síðan geyma í gagnagrunni,“ segir hann.

Jónas segir að hann hafi endað í hálfgerðum yfirheyrslum, þar sem átti að ná honum endanlega inn:

„Á endanum var ég látinn taka eitthvað sex klukkutíma yfirheyrsluprógram og eftir það var sagt við mig: „Jónas þú ert snillingur og það er þess vegna sem þér líður svona, fólk skilur þig bara ekki. Þú ert bara miklu klárari en hinir, en við erum með fullt af svona fólki eins og þér hérna hjá okkur í vísindakirkjunni.” Svo virkar egóið hjá manni þannig að mér fannst þetta bara frábærar fréttir. Svo fór ég að skoða vinnubrögðin þeirra betur á netinu og þá sá ég að þeir fara í mál við alla sem reyna að skrifa bók um þá eða tala um hvernig þeir vinna og þá byrjaði ég að átta mig. Egóið og hégómi nær að hoppa framhjá því að maður sé klár og þess vegna geta þeir náð klárasta fólkinu inn með því að segja þeim að þau séu frábær og betri en allir hinir. Þarna rann upp fyrir mér að þetta gæti verið hættulegt. Ég hafði verið svo vitlaus að láta þau fá Microsoft númerið mitt og þau hringdu í mig stanslaust í 3 ár eftir þetta. Það var alltaf einhver nýr að hringja og þau hættu bara ekki!”

Leist ekki á stefnu Microsoft

Jónas var á blússandi siglingu innan raða Microsoft þegar á hann fóru að renna tvær grímur þar sem honum leist ekki alveg á stefnu fyrirtækisins.

„Allir sem ég vann með þarna voru framúrskarandi. Ég var að vinna með algjörlega framúrskarandi fólki frá öllum heimshornum, sem hafði átt þann draum heitastan að vinna fyrir svona risafyrirtæki og gera gagn. En svo vorum við bara á einhverjum fundi og það var kannski tilkynnt að það ætti að henda öllu sem við vorum búin að gera í heilt ár og sagt að það væri frábært. Ég man eftir einum svona fundi þar sem rússneskur gagnagrunnssérfræðingur sem var að vinna með mér stóð upp og sagði: ,,This is Bullshit”.

Jónas segist hafa lent í ákveðinni tilvistarkreppu þegar hann fór að sjá stóru myndina:

„Maður sá þessa tilhneigingu að liggja rosalega á að klára dílana sem hraðast til að geta náð þeim inn í næsta ársfjórðung svo það væri á endanum hægt að taka úr arð. Það er rosalega mikið af ótrúlega hæfileikaríku fólki sem er að vinna fyrir þessi fyrirtæki sem áttar sig síðan kannski ekki á því fyrr en eftir langan tíma að þú varst ekki alveg að ganga þeirra erinda sem þú vildir.”

Í viðtalinu ræða Sölvi og Jónas um stöðu upplýsingaflæðis í nútímanum, hvert gervigreind er komin, hversu öflugir algóritmarnir eru orðnir og svo auðvitað um tónlistina og ástríðurnar í lífinu. Þáttinn í heild má sjá hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=2RAGluQeYtY&t=2278s

Þú getur einnig hlustað á þáttinn á Spotify.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar