Hönnunarhátíðin Hönnunarmars er komin í fullan gang með tilheyrandi lekkerheitum og gleði. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnaði formlega speglaverkið, Torg í speglun, í gær við mikla gleði viðstaddra. Hönnuður verksins eru þau Arnar Ingi Viðarsson og Valdís Steinarsdóttir.
Verkið hluti af verkefninu Torg í biðstöðu hjá Reykjavíkurborg. Verkefnið er unnið í samstarfi við Hönnunarmiðstöð sem styrkir verkefnið.
Speglarnir mynda hlið við Kvosina í miðborginni og er þeim meðal annars ætla að að efla sjálfsmynd fólks. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að verkið — sem er 6 metra langt, 4 metra hátt og 4 metra breitt, endurspegli nærumhverfi sitt og þá einstaklinga sem verkið skoða. Áhorfendur geti þar af leiðandi upplifað sjálfa sig og umhverfið á nýjan hátt frá mismunandi sjónarhornum. Þannig er verkinu ætlað að opna á samtal um mikilvægi jákvæðrar sjálfsmyndar og einkennis borgara í borg sinni
„Hugsunin er að skapa samverustað og styrkja þannig félagstengsl fólks í miðborginni. Þetta svæði er gegnumflæði en þarna getur myndast áningarstaður þar sem fólk hittist,“ segir Rebekka Guðmundsdóttir borgarhönnuður í Reykjavíkurborg. Hún segir verkið verða staðsett í miðborginni fram í september eða á meðan veður leyfi. Svo séu uppi allskonar hugmyndir um framhaldslíf þess meðal annars að koma því fyrir á grænusvæði.