Gervimaður sem kallar sig Baldur Muller hefur undanfarið hertekið umræðuna á Stjórnmálaspjallinu með fordómafullum skoðunum. Nú beinir hann sjónum sínum að sjálfsflekkun eða einfaldlega sjálfsfróun og fullyrðir að það sé engum til góðs. Baldur þessi hefur vakið mikla athygli, hann þykir afar forn í skoðunum og hafa ýmsar kenningar verið settar fram um hver sé raunverulegi maðurinn að baki aðganginum. Fréttablaðið fjallaði um gervimanninn nýverið og fletti ofan af því að myndin sem hann notar sé af Úkraínumanni. Gervimaðurinn Baldur segir og vísar líkast til í frétt DV nýverið um bók Írisar Stefaníu Skúladóttur um sjálfsfróun kvenna.
„Ung íslensk kona hyggst gefa út bók um sjálfsflekkun kvenna en hún segir að allar konur ásamt öllum karlmönnum stundi slíkt. Rannsóknir sýna hinsvegar að 38% kvenna og 61% karla stunda ósiðinn. Í Biblíunni er fólki eindregið ráðið frá sjálfsflekkun (Sjá Kólossubréf 3:5) Stundir þú sjálfsflekkun er hægt að láta af hegðuninni (Sjá Fyrsta Jóhannesarbréf 3:20),“ skrifar gervimaðurinn
Nokkrir notendur Stjórnmálaspjallsins hafa gert tilraun til að svara Baldri, þar á meðal Arnór nokkur sem skrifar: „Þú veist að í þeim ríkjum BNA þar sem kynfræðsla byggir á skírlífi er tölfræðin um unglingaóléttu og kynferðislegt ofbeldi talsvert talsvert hærra en í ríkjum þar sem kynfræðsla byggir á upplýstu samþykki, fræðslu um sjálfsfróun og virðingu gagnvart hinu kyninu? Skiptir ekki máli. Þér er drullusama og skilur ekki staðreyndir. Alltaf gaman að reyna samt.“
Baldur svarar þessu og segir: „Skilur þú ekki að í rannsókninni kemur fram að rétt undir helmingur fólks stundar sjálfsflekkun en þeir sem vilja meina að það sé eðlilegur hlutur segja að 99% eða meira stundi slíkt sem er lygi. Fleztir stunda kynlíf um ævina og bera virðingu fyrir hinu kyninu en það bætir ekki úr skák fyrir neinn að falla í eigin lostafíkn.“
Nokkrir furða sig á því að gervimaðurinn setji út á sjálfsfróun. Einn spyr hvort hann hafi sjálfur aldrei lagst stund á sjálfsflekkun. Því svarar gervimaðurinn: „Nei, það hef ég aldrei gert.“ Hann skýrir svo nánar hvers vegna þetta sé böl. „Hún þjónar engum tilgangi fyrir fólk nema að svala eigin losta sem leiðir ekki til neins góðs.“