fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Eftirlætisjólasmákökur Evu Laufeyjar og Lindu Ben

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 22. desember 2019 14:30

Eva Laufey Kjaran.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarpsstjarnan Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir prófar ávallt nýjar uppskriftir fyrir hver jól í bland við hinar gömlu góðu sem hún segir ómissandi yfir hátíðina. Hún segir sörur, piparkökur og marengstoppa alltaf njóta mestra vinsælda á heimilinu.

Eva Laufey segir smákökubakstur órjúfanlega hefð á aðventunni enda var hún alin upp við mikinn bakstur. Hún minnist ljúfra stunda með mömmu sinni og ömmu í eldhúsinu. „Mér fannst æðislega gaman að fylgjast með þeim baka loftkökur, það var mesta sportið. Ég vissi alltaf upp á hár var kökuboxin voru geymd þegar ég var lítil enda lunkin að ná mér í eina og eina smáköku yfir aðventuna. Það er svo notalegt að baka á aðventunni og ég byrja yfirleitt snemma að baka og skreyta heimilið. Ég vil helst hafa heimilið sem lengst í jólabúningi, dagarnir eru dimmir og birtan frá jólaskrautinu gerir heilmikið fyrir huggulegheitin.“

Þegar talið berst að eftirlætisjólasælgætinu nefnir Eva fyrst konfektmolann frá Nóa Síríus með marsípanfyllingu. „Ég elska osta og borða mikið af þeim ásamt laufabrauði, að mínu mati er það hið fullkomna jólasælgæti. Súkkulaði með rjóma og jólalög koma mér sömuleiðis í sannkallaðan jólafíling en svo horfum við fjölskyldan alltaf á The Grinch sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur öllum. Hún er alltaf jafn skemmtileg.“

Smákakan sem aldrei má vanta á aðventunni segir Eva vera söru enda séu sörur í sérstaklega miklu uppáhaldi hjá henni og hennar fjölskyldu. „Ég byrja yfirleitt á því að baka þessar kökur fyrir jólin en það er svo gott að vera búin að því og geta fengið sér eina og eina í desember. Það er einnig svo gott að eiga þær í frystinum og þær geymast mjög vel. Ég ætla að deila með ykkur uppskriftinni sem ég geri alltaf fyrir jólin en uppskriftin er frá mömmu minni. Þær eru aðeins grófari vegna þess að við notum heslihnetur í botninn en auðvitað má skipta þeim út fyrir möndlur.


Botn:
4 eggjahvítur
230 g heslihnetur eða möndlur
230 g flórsykur

Hitið ofninn í 180°C. Hakkið heslihneturnar eða möndlurnar í matvinnsluvél. Stífþeytið eggjahvíturnar þar til hægt er að hvolfa skálinni án þess að hvíturnar renni úr. Blandið hnetunum og flórsykrinum varlega saman við eggjahvíturnar með sleikju. Mótið kökurnar með teskeið og setjið á pappírklædda ofnplötu. Bakið í 10–12 mínútur.

Krem:
4 eggjarauður
1 dl vatn
130 g sykur
250 g smjör, við stofuhita
2–3 msk. kakó
½ tsk. vanillusykur eða vanillu-extract
1 msk. sterkt, uppáhellt kaffi

Þeytið eggjarauðurnar. Hitið vatn og sykur þar til það hitnar og verður að sírópi. Hellið sírópinu saman við eggjarauðurnar í mjórri bunu og haldið áfram að þeyta. Skerið smjörið í teninga og bætið út í. Næsta skref er að bæta kakó, vanillu og kaffi út í kremið. Þeytið í svolitla stund eða þar til kremið verður silkimjúkt. Það er ágætt að smakka þetta til á þessu stigi. Kælið kremið áður en þið setjið það á kökurnar. Gott er að sprauta kreminu á kökurnar með sprautupoka eða nota teskeiðar til þess að smyrja kreminu á þær. Það er algjört smekksatriði hversu mikið af kremi fer á kökurnar. Kælið kökurnar mjög vel, helst í frysti, áður en kökurnar eru hjúpaðar.

Hjúpur
300 g súkkulaði

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Dýfið kremhlutanum á sörunum ofan í súkkulaðið. Gott er að geyma kökurnar í frysti, takið þær út með smá fyrirvara áður en þið berið þær fram.

Linda Benediktsdóttir er kökuáhugafólki vel kunn en hún byrjaði snemma að æfa sig í eldhúsinu. Hún, rétt eins og Eva Laufey, minnist ljúfra stunda með móður sinni og ömmu við bakaraofninn fyrir jólin. Hún segist hafa sérstaklega gaman af því að prófa sig áfram með smákökusortir því útkoman sé nánast alltaf góð.

„Það er mjög mismunandi hversu mikið við bökum fyrir jólin, en það er eitthvað sem ég og sonur minn höfum alltaf gert saman. Jólin snúast um að gera skemmtilega hluti saman og njóta samverunnar, svo mér finnst það varla vera jólabakstur nema fjölskyldan taki þátt saman. Sum jól höfum við nægan tíma til að dúlla okkur í eldhúsinu, en stundum gefst minni tími og það er allt í lagi. Mér finnst betra að setja ekki of mikla pressu á okkur fjölskylduna, jólin snúast um að hafa gaman. Jólaskapið hellist svo yfir mig þegar ég hlusta jólalög með með stráknum mínum á meðan við skreytum piparkökur.“

Þegar talið berst að eftirlætisjólasælgætinu vefst svarið ögn fyrir Lindu. „Ég á erfitt með að gera upp á milli, en ætli það sé ekki marsípanmolarnir frá Nóa og After Eight, það kemur í það minnsta fyrst upp í hugann. Uppáhaldsjólamyndin er hins vegar National Lampoon’s Christmas Vacation, á því leikur enginn vafi.“

Kökurnar sem aldrei má vanta á aðventunni segir Linda vera súkkulaðismákökur og deilir hún með lesendum DV uppskrift að slíkum. „Þessar kökur hef ég gert óteljandi oft, en ég lærði það fyrst í matreiðslutíma í grunnskóla. Uppskriftina hef ég geymt í öll þessi ár enda algjör gersemi.“

100 g smjör við stofuhita
1 dl púðursykur
1 dl sykur
1 egg
½ tsk. vanilludropar
3,5 dl hveiti
½ tsk. matarsódi
½ tsk. salt
70 gróft, brytjað súkkulaði

Setjið smjör, púðursykur og sykur í skál og hrærið þar til blandan verður létt og loftmikil. Bætið þá egginu út í og hrærið saman við. Bætið því næst vanilludropunum út í. Blandið saman hveiti, matarsóda og salti og blandið því saman við deigið, hrærið eins lítið og þið komist upp með, hættið um leið og allt hveitið hefur blandast saman við. Skerið niður súkkulaðið og blandið því saman við deigið með sleikju. Setjið deigið inn í ísskáp og kælið í 30 mínútur. Kveikið á ofninum og stillið á 170°C og undir- og yfirhita. Útbúið kúlur úr deiginu, ein kúfuð matskeið af deigi er ein kaka, raðið á ofnplötu með góðu millibili, bakið í 8–10 mínútur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar