Kristinn Sigurjónsson, fyrrverandi lektor við HR, og stuðningsmenn hans hafa haldið því fram að ummæli hans sem urðu til þess að hann var rekinn úr skólanum hafi verið einhverskonar einsdæmi eða sögð í hálfkæringi.
Líkt og hefur komið fram þá var hann rekinn fyrir að segjast ekki vilja vinna með konum. Hér eru þó 16 skjáskot sem sýna athugasemdir hans víða síðustu ár. Nokkur þeirra eru innan hóps Íslensku Þjóðfylkingarinnar, þjóðernispopúlísk flokks sem ítrekað hefur verið sakaður um rasisma.