fbpx
Sunnudagur 14.desember 2025
Fókus

Aníta Briem lenti í niðurlægjandi reynslu – „Þar pöntuðu þeir vændiskonur til að dansa naktar“

Auður Ösp
Föstudaginn 5. október 2018 17:00

Aníta getur verið feykistolt af dóttur sinni, sem er greinilega með stórt hjarta.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Burtséð frá því að hugsa eða hugsa ekki um hvort mér liði illa, virðist það ekki hafa hvarflað að þeim að ég myndi segja einhverjum frá,“ segir Aníta Briem leikkona. Í forsíðuviðtali við tímaritið MAN greinir Aníta meðal annars frá reynslu sinni af Metoo- byltingunni sem tröllreið samfélagsmiðlum í lok síðasta árs. Sjálf hefur hún upplifað misrétti og misbeitingu valds innan Hollywood heimsins.

Líkt og flestum er kunnugt var það upphaf Metoo byltingarinnar þegar fjöldi kvenna stigu fram og sökuðu kvikmyndaframleiðandann Harvey Weinstein um kynferðislega misnotkun, áreiti eða kynferðislegt ofbeldi. Aníta greinir frá því að hún hafi margoft hitt Harvey Weinstein og jafnvel fengið frá honum gylliboð um kvikmyndahlutverk þó svo að ekkert hafi orðið úr því.

„Hann hrósaði mér á afar sjarmerandi hátt, sagði mér að hann langaði að gera bíómynd fyrir mig þar sem ég léki Brigitte Bardot. Ég vissi að það væri „bullsjitt“, en veit ekki hvernig ég hefði snúið mér ef hann hefði beðið mig að koma upp á hótelherbergi að ræða það.“

Aníta rifjar einnig upp atvik sem átti sér stað þegar hún var að stíga sín fyrstu skref í Hollywood bransanum, 24 ára gömul. Hún var að eigin sögn „að gera sitt besta til synda í honum stóra sjó“ og lifa af í geira þar sem samkeppnin er yfirþyrmandi.

Það þýddi að hún þurfti ítrekað að leiða hjá sér óviðeigandi athugasemdir og niðurlægandi brandara. Lýsir hún því þannig að eitt kvöld hafi hún endað ein í hótelherbergi með fimm 45 ára karlmönnum, sem þá voru yfirmenn hennar. Um var að ræða valdamikla menn í bransanum.

„Þeir höfðu boðið mér í kvöldverð til að halda upp á fyrstu vinnuvikuna og svo í einhvers konar eftirpartý. Þar pöntuðu þeir vændiskonur til að dansa naktar og snerta hver aðra. Eftir skamma stund fóru þeir að hlæja að stelpunum og hrópa niðrandi athugasemdir eins og þær væru latar,“ rifjar Aníta upp.

Mér fannst ég ekki eiga þess kost að labba út. Eða gera athugasemd. Vera „lame“. Eða skemma fyrir þeim kvöldið. Hætta á að verða rekin, eða ekki ráðin í önnur verkefni hjá fyrirtækjum þeirra.“

Viðtalið við Anítu má finna í heild sinni í nýjasta tölublaði MAN.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga

Kommentakerfi Jerusalem Post logar eftir Eurovision-ákvörðun Íslendinga
Fókus
Fyrir 2 dögum

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því

Dagbjört deilir áhrifaríku ráði fyrir jólin en eflaust flestir ekki tilbúnir að taka því
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu

Einstaklega falleg íbúð til sölu á Hverfisgötu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu

Leikarinn hefur misst yfir 75 kíló – Þetta borðar hann til að viðhalda þyngdartapinu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“

Sunneva gáttuð að ungir krakkar séu farnir að sækjast aftur í þetta – „Náttúrulega alveg galið“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“

Skilur ekkert í myndinni sem raunveruleikastjarnan birti af honum – „Uuu… hvað gerðirðu við andlitið mitt?“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins

Hópur unglinga var að eyðileggja upplifunina í Smárabíó – Hrósar viðbrögðum starfsfólksins
Fókus
Fyrir 5 dögum

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“

Telur sig hafa slegið Íslandsmet í dósaflokkun – „RIP allir aðrir sem voru að fara með dósir á eftir þér“