fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fókus

Sýningarspjall – Danshljóðfæri og draumahús náttúruunnanda

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. október 2018 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag kl. 17 ætlar listamaðurinn Tryggvi Gunnar Hansen að vera með listamannaspjall um sýningu sína Danshljóðfæri og draumahús náttúruunnanda í Borgarbókasafninu Árbæ.

Undanfarin ár hefur Tryggi helgað sig rannsóknum á þjóðfræði og máraunar segja að listsköpun hans snúist að miklu leyti um þau fræði. Tryggvi sér fyrir sér samfélag í sátt við náttúruna án stéttskiptingar og misskiptingar valds. Listaverkin á sýningunni tengjast þeirri hugsjón en myndunum má meðal annars sjá híbýli sem falla vel að náttúrunni og hljóðfæri sem hann smíðar sjálfur með eldri hljóðfæri sem fyrirmynd.

Tryggvi Gunnar Hansen er fæddur á Akureyri 1956. Hann stundaði nám í myndlist í Myndlista- og Handíðaskólanum á árunum 1978 til 1984. Einnig hefur hann lært heimspeki, þjóðfræði, sálfræði, ásamt torfhleðslu og byggingarlist. Sveinn Einarsson frá Hrjóti og Stefán í Brennigerði kenndu Tryggva listina að hlaða úr torfi og grjóti en þá iðju stundaði hann um 20 ára skeið.

Um aldamótin ferðaðist Tryggvi til Evrópu, mest norður- og austurhlutann og kannaði þjóðlönd og fornann menningararf. Hann telur að með því að bera saman þjóðmenningu frá ýmsum tímabilum og landssvæðum getum við fengið betri sýn á fortíðina og einfaldara sé byggja upp betra þjóðfélag. Í Evrópu var ríkjandi náttúrumenning líkt og meðal Indíána í Ameríku en hún hvarf þegar þjóðríkið tók við en það var stofnað af herforingjum. Tryggvi vill að mannkynið hverfi aftur til fyrra skipulags þar sem allir höfðu aðgang að valdinu og vopn voru óþörf. Hann vitnar meðal annars í rannsóknir Mariu Gimbutas við Svartahaf þar sem fundist hafa minjar um byggð þar sem menning var á háu stigi en engin vopn.

Sýning Tryggva stendur út októbermánuð.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður

Íslensk hundanöfn hafa tekið miklum breytingum – Þetta hétu hundarnir á öldum áður
Fókus
Í gær

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra

Aðeins ein sýning á einstakri mynd um þjálfara körfuboltaliðs fatlaðra
Fókus
Fyrir 3 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta

Sjáðu paratattú Kleina og Hafdísar sem eru hjá því allra heilagasta