„Helvítis martröð“ og „Þetta var allt Biden að kenna,“ er meðal þess sem haft er eftir David Plouffe, fyrrum ráðgjafa Barack Obama, um tilraun Kamala Harris til að verða forseti Bandaríkjanna.
The Guardian skýrir frá þessu og segir að Plouffe skafi ekki utan af hlutunum þegar rætt er um Biden og Harris og forsetaframboð þeirra beggja.
Hann segir að það hafi einfaldlega tekið Biden of langan tíma að átta sig á að hann væri orðinn of gamall og ætti í raun ekki möguleika á „fjórum árum til viðbótar“ í Hvíta húsinu. „Hann plataði okkur algjörlega,“ segir hann um skilningsleysi Biden á áhyggjum annarra af andlegu ástandi hans og heilsufari.
Plouffe er sérstaklega ósáttur við að Biden hafi haldið fast við forsetaframboð sitt í þrjár vikur eftir hörmulegar sjónvarpskappræður hans og Donald Trump.
Plouffe fékk símtöl frá mörgum, sem höfðu gefið fé í kosningasjóð Biden, sem höfðu áhyggjur af getu Biden til að komast í gegnum kosningabaráttuna.
Plouffe segir að þetta hafi orðið til þess að hann hafi þrýst á Demókrata um að taka afstöðu til þessara áhyggna en þeir hafi alltaf svarað að engin vandi væri til staðar.
En miðað við orð hans, þá var mikið í gangi á bak við tjöldin.
Ekki síst vegna þess að hin hörmulega frammistaða Biden í kappræðunum við Trump var ekkert einsdæmi. Frá 2022 hafi heilsu hans og minni hrakað mikið. Ekki var óalgengt að hann gleymdi hvað nánustu ráðgjafar hans hétu og hann missti ítrekað þráðinn í ræðum sínum.