fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Segir bætast í hóp þeirra sem „grenja eins og stungnir grísir“ yfir gjaldfrjálsum skólamáltíðum

Eyjan
Föstudaginn 27. september 2024 14:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gefur lítið fyrir „grátinn“ í Viðskiptaráði út af gjaldfrjálsum skólamáltíðum. Hagstofa Íslands tilkynnti í dag að verðbólgan hefði lækkað nokkuð milli mánaða og megi helst rekja það til verðlækkana mötuneyta eftir að skólamáltíðir voru gerðar gjaldfrjálsar fyrir grunnskólanema. Viðskiptaráð kallaði þessa verðlækkun skammgóðan vermi enda liggi fyrir að ókeypis skólamáltíðir muni kosta ríkissjóð 1,7 milljarð í ár, sem muni auka hallarekstur ríkisins. Þar með hafi þetta áhrif til lækkunar verðbólgu í dag, en næstu mánuði muni þetta stuðla að þenslu.

Vilhjálmur kallar þessa spá Viðskiptaráðs uppistand og í raun sé magnað að heyra Viðskiptaráð „grenja yfir því að okkur í verkalýðshreyfingunni hafi tekist að tryggja öllum börnum í grunnskólum vítt og breitt um landið gjaldfrjálsar skólamáltíðir og að sú barátta skili sér síðan í umtalsverðri lækkun verðbólgu milli mánaða“.

Það sé með öllu órökstudd af Viðskiptaráði hvernig þetta eigi að auka verðbólguna síðar, og segist Vilhjálmur bíða spenntur eftir slíkum rökstuðning. Á meðan sé það staðreynd að verðtryggðar skuldir heimila lækka þar sem lækkun á vísitölu lækkar höfuðstól. Á meðan megi Viðskiptaráð vel grenja með Sjálfstæðismönnum yfir því að börn þurfi ekki að borga fyrir skólamatinn.

„Ég bíð spenntur eftir næsta uppistandi frá Viðskiptaráði. Ég spyr hvað lækkuðu verðtryggðar skuldir ríkissjóðs og sveitarfélaga mikið við það eitt að vísitala neysluverðs lækkaði milli mánaða um 0,24%? Ég myndi geta svarað því ef ég vissi nákvæma skuldastöðu á verðtryggðum skuldum hjá ríki og sveitarfélögum.

Ég hinsvegar veit að höfuðstóll heimila sem eru með verðtryggð lán mun lækka vegna þess að vísitalan lækkar á milli mánaða og sem dæmi þá mun 60 milljóna króna verðtryggt húsnæðislán lækka um 144 þúsund. Mig minnir að verðtryggðar skuldir íslenskra heimila nemi í kringum 1500 milljörðum sem þýðir að þær lækka um 3,6 milljarða.

Já, Viðskiptaráð grenjar yfir því að barnafjölskyldur fái þá „búbót“ að vera með gjaldfrjálsar skólamáltíðir fyrir börn sín sem ég veit að kemur sér mjög vel fyrir lágtekju-og millitekjufólk.
Það má kannski segja að Viðskiptaráð endurspegli grátkór sveitarstjórnarmanna Sjálfstæðismanna sem hafa grenjað eins og stungnir grísir yfir því að hafa þurft að taka þátt í því í síðustu kjarasamningum að skólamáltíðir yrðu gjaldfrjálsar.

En eitt er víst að þessi lækkun á verðbólgu milli mánaða mun skila sér í lækkun á höfuðstól verðtryggðra lána jafnt hjá skuldsettum heimilum sem og hjá ríki og sveitarfélögum. Einnig mun þessi lækkun milli mánaða lækka leigu hjá þeim sem eru með verðtryggða húsaleigusamninga.
Allt jákvætt við þetta þökk sé verkalýðshreyfingunni og það er kannski það sem pirrar Viðskiptaráð! “

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins