Hagstofan birti í morgun nýjar verðbólgutölur en samkvæmt þeim hækkar vísitala neysluverðs lítillega á milli mánaða, eða um 0,6%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitalan hækkað um 7,9%.
Vilhjálmur gerir þetta að umtalsefni á Facebook-síðu sinni í morgun og segir það vekja sérstaka athygli að reiknuð húsaleiga í vísitölunni hækkar um 0,38%.
„Takið eftir 63% af hækkun á vísitölunni milli mánaða er vegna reiknaðrar húsaleigu. En þeir þættir sem keyra reiknaða húsaleigu upp eru, já takið eftir, vaxtahækkanir og hækkun á fasteignaverði. Með öðrum orðum, Seðlabankinn sjálfur stuðlar að hækkun verðbólgu hér á landi með þessum okurvöxtum sínum sem birtast í reiknaðri húsaleigu.“
Vilhjálmur segir það hafa blasað við um áratugaskeið að reiknuð húsaleiga eigi stóran þátt í að keyra verðbólguna upp hér á landi. Það orsakist af háu vaxtarstigi og gríðarlegri hækkun á fasteignaverði sem komi fyrst og fremst til vegna framboðsskorts á húsnæðismarkaði.
„Hugsið ykkur að upp undir 40% af verðbólgu á Íslandi frá árinu 2015 er keyrð áfram vegna reiknaðrar húsaleigu í neysluvísitölunni en flest lönd sem við berum okkur saman við eru ekki að reikna hana út eins og við,“ segir Vilhjálmur og bætir við að af þessum sökum sé ein af kröfum Starfsgreinasambandsins að útreikningum á húsnæðisliðnum í neysluvísitölunni verði breytt.