„Fólk sem ekki vill leyfa kosningar getur ekki fengið að halda efnahagslífi Íslands í heljargreipum. Sú stund hlýtur að vera runnin upp að stjórnvöld höggvi á hnútinn,“ segir Morgunblaðið í dag í Staksteinadálki sínum.
Verkföll standa nú yfir hjá hluta af félagsfólki Eflingar, meðal annars hjá starsfólki hótela og hjá olíubílstjórum, og er farið að gæta eldsneytisskorts á bensínstöðvum. Á hádegi næsta fimmtudag mun síðan taka gildi verkbann SA sem gerir alla Eflingarfélaga verklausa og launalausa.
Sólveig Anna, formaður Eflingar, boðar harðar aðgerðir Eflingar þegar verkbannið hefst á fimmtudag. Er því ljóst að deila Eflingar og SA er í hörðum hnút sem bara herðist. Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til fundar í deilunni og ekkert bólar á nýrri miðlunartillögu í frá hans hendi.
Staksteinar taka afstöðu með SA og segja ekkert í stöðunni annað en að ríkisstjórnin setji lög á verkfallsaðgerðir Eflingar. Segir pistilhöfundur að með aðgerðum Eflingar sé hægt að valda langvarandi tjóni sem allir tapi á, ekki eingöngu stjórnendur og eigendur fyrirtækjanna sem aðgerðirnar beinast að. Höfundur segir tímabært fyrir ríkisvaldið að grípa inn í:
„Nú er komið að því að grípa verður inn í. Ein leið væri miðlunartillaga, en það hefur lítinn tilgang því að Efling neitar að leyfa félagsmönnum sínum að kjósa. Nema mögulega ef miðlunartillagan væri forystu Eflingar að skapi, en slíkt skilyrði væri óviðunandi.
Fólk sem ekki vill leyfa kosningar getur ekki fengið að halda efnahagslífi Íslands í heljargreipum. Sú stund hlýtur að vera runnin upp að stjórnvöld höggvi á hnútinn.“