fbpx
Fimmtudagur 12.desember 2024
Eyjan

Orkan selur 50% hlut í Íslenska vetnisfélaginu – Uppbygging á vetnisstöðvum við hringveginn framundan 

Eyjan
Mánudaginn 13. febrúar 2023 14:25

Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar, Guðmundur Ingi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Íslenska vetnisfélagsins, Tryggvi Þór Herbertsson, framkvæmdastjóri vetnisþróunarviðskipta hjá Qair Group og Guðlaugur Þór Þórðarsson, ráðherra umhverfis- orku- og loftslagsmála

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkan selur 50% hlut í Íslenska vetnisfélaginu til franska fyrirtækisins Qair. Saman ætla fyrirtækin að taka þátt í uppbyggingu á vetnisstöðvum hringinn í kringum Ísland. Íslenska vetnisfélagið er dótturfyrirtæki Orkunnar og rekur í dag tvær vetnisstöðvar, á Vesturlandsvegi og í Fitjum, Reykjanesbæ. Orkan er eina eldsneytisfyrirtækið sem býður viðskiptavinum vetni. Á næstu árum verða fjórar nýjar vetnisstöðvar teknar í notkun, þær fyrstu í Reykjavík og á Akureyri, næsta stöð þar á eftir er fyrirhuguð á Egilsstöðum og að lokum á Freysnesi. Óhætt er því að segja að orkuskiptin snúi ekki einungis að rafmagni en árið 2026 verður hægt að keyra kolefnishlutlaust hringveginn á vetnisbíl.

Fyrsta vetnisstöðin á Íslandi, sem var jafnframt sú fyrsta í heiminum til að selja vetni á neytendamarkaði, var tekin í notkun árið 2003 og eru um 30 vetnisbílar á suðvestur horninu í dag. Drægni vetnisbíla er umtalsvert meiri en rafmagnsbíla ásamt því sem engin rafhlaða er sem þyngir bílana. Vetnisbílar skila frá sér vatni og eru því kolefnishlutlausir og mikilvægur hlekkur í að draga úr kolefnisfótspori samganga í landinu. Mikill áhugi er fyrir þessum græna valmöguleika, sérstaklega þegar kemur að þungaflutningum þar sem ökutækin munu draga verulega úr kolefnisspori, og er því áætlað að vetnisbílum fjölgi hratt þegar innviðir styrkjast, bæði fólksbílar og flutningabílar.

„Þessi metnaðarfulla uppbygging mun geta valdið straumhvörfum í orkuskiptum í innanlandssamgöngum. Vetnisinnviðir eru forsenda þess að neytendur og fyrirtæki telji raunhæft að fjárfesta í vetnisbílum.“ segir Guðmundur Ingi, framkvæmdastjóri ÍV. „Fyrirtæki eru stöðugt að leita leiða til að draga úr kolefnisspori og með mest 380 km milli vetnisstöðva verður hægt að búa til forsendur fyrir því að loka hringveginum og færa vöruflutninga yfir á kolefnishlutlausa orkugjafa. ÍV er gríðarlega spennt fyrir orkuskiptunum sem framundan eru og að taka þátt í uppbyggingunni á grænum valkostum fyrir neytendur.“ bætir hann við.

Samhliða er búið að tryggja landssvæði á Grundartanga þar sem Íslenska vetnisfélagið mun byggja vetnisframleiðslu í þeim tilgangi að þjónusta vetnisinnviðum með sem bestum hætti.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Valdalaus Bjarni Ben veitir leyfi til hvaladráps næstu fimm árin – Ný ríkisstjórn hlýtur að ógilda leyfið

Orðið á götunni: Valdalaus Bjarni Ben veitir leyfi til hvaladráps næstu fimm árin – Ný ríkisstjórn hlýtur að ógilda leyfið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“

Skiptar skoðanir á hver fari í raun frjálslega með sannleikann – „Þetta er ekki boðlegur málflutningur hjá þér“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristrún boðar Þorgerði og Ingu á fund

Kristrún boðar Þorgerði og Ingu á fund
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Sjálfstæðisflokkinn vera eins og misnotaðan hund – þjóðin hringdi á hundaeftirlitsmanninn

Segir Sjálfstæðisflokkinn vera eins og misnotaðan hund – þjóðin hringdi á hundaeftirlitsmanninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Brynjar er hættur – „Ætli ég hafi slegið nýtt met í að hætta í pólitík?“

Brynjar er hættur – „Ætli ég hafi slegið nýtt met í að hætta í pólitík?“