Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hefur sent frá sér ályktun þar sem miðstjórn segist harma þá „neikvæðu og ofstækiskenndu“ orðræðu sem hafi átti sér stað í kjaraviðræðum og nú í kjaradeilum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins, sem og um miðlunartillögu ríkissáttasemjara.
„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands harmar neikvæða og ofstækiskennda orðræðu í tengslum við kjaraviðræður, nú síðast í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins og miðlunartillögu ríkissáttasemjara.“
Miðstjórn segir mikilvægt að álitamál fái viðhlítandi meðferð og það sé ótækt á ágreiningur sé „nýttur til að hafa í frammi haturskennd og viðurstyggileg ummæli í garð tiltekinna einstaklinga, hópa og samtaka.“
„Eðlilegt er að tekist sé á um hin ýmsu álitaefni og að fram komi ólík sýn til margra grunnþátta samfélagsins. Þetta á augljóslega við um þær reglubundnu kjaraviðræður sem fram fara í landinu og þá hagsmuni sem þar eru í húfi.
Miðstjórn Alþýðusambandsins hvetur til stillingar og varar við því að kjaradeila, eðlilegur og viðtekinn framgangsmáti á vinnumarkaði, sé túlkuð á þann veg að réttmætt sé að ausa fúkyrðum og hatri yfir þau sem að þessum verkefnum koma.
Alþýðusamband Íslands mun ávallt fordæma slíka framgöngu og hér eftir sem hingað til standa vörð um þau gildi lýðræðis og mannvirðingar sem liggja hreyfingu launafólks til grundvallar.“