fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Tommi opnar sig um framboðið – „Ég skal viðurkenna að ég hef enga reynslu“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 19. september 2020 10:30

Tommi á Búllunni. Mynd: Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, greindi frá því í pistli sínum í Morgunblaðinu í dag að Tómas Tómasson, oftast þekktur sem Tommi á Búllunni, væri að fara í framboð fyrir Flokk fólksins.

Tommi opnar sig um framboðið í pistli á vefsíðu Eíríks Jónssonar. „Þannig er að allar götur frá því að ég opnaði Tomma hamborgara í marz 1981 hef ég verið ákveðinn að fara út í pólitík þegar ég yrði eldri,“ segir Tommi. „Það er ekki fyrr en núna um 40 árum síðar sem ég er tilbúinn í slaginn. Þess vegna hef ég gengið til liðs við Flokk fólksins og stefni á að taka þátt í næstu kosningum til Alþingis.“

Tommi segir þetta vera stórt skref og algjöran viðsnúning í hans lífi en hann er orðinn 71 árs. „Þannig að ég verð sjötíu og tveggja þegar kosið verður. Hef varla meira en eitt skot í byssunni, en jú, Joe Biden er sjötíu og átta, svo afhverju ekki,“ segir Tommi um aldurinn.

„Ég skal viðurkenna að ég hef enga reynslu af stjórnmálum og pólitík en einhverstaðar verður maður að byrja. Það sem ég hef fram að færa er áratuga reynsla af atvinnurekstri og framkvæmdum þar sem ég hef borið fulla ábyrgð á öllum ákvörðunum, framkvæmdum, mannhaldi og gjörðum, frá a til ö. Oft ansi erfitt og erilsamt.“

Þá vitnar Tommi í boxarann fræga Muhammad Ali. „Það er ekki spurning hversu oft maður er sleginn niður heldur hversu oft maður stendur upp. Að auki hef ég yfir fimmtíu ára reynslu í ferðaiðnaðinum og þekki í raun lítið annað. Ferðaiðnaðurinn er jú orðin ein af undirstoðum atvinnulífs og gjaldeyristekna á íslandi svo það ætti eitthað að nýtast í baráttunni.“

Tommi segist velja Flokk fólksins þar sem flokkurinn hefur ýmislegt sem er honum að skapi á stefnuskrá sinni. „Til dæmis kjör öryrkja, kjör og aðbúnað eldriborgara þar sem ég er nú orðinn eldriborgari sjálfur. Kjör einstæðra foreldra, verandi einstæður faðir. Ég á 13 ára dóttir sem ég læt mér mjög ant um. Svo ég tali nú ekki um erfitt lif móður minnar sem einstæð móðir. Útrýma fátækt, styðja við bakið á þeim sem minna mega sín og starfa eftir kærleik og almennum góðum gildum,“ segir hann.

„Ég hef legið undir feldi nú um skeið og hugsað minn gang og fíla mig eins og fuglinn Fönix: „Tilbúinn í slaginn“. Nú er bara að sjá hvað setur. Flokkur fólksins. Áfram veginn!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“