fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
Eyjan

ASÍ krefst hækkunar á atvinnuleysisbótum

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 8. júní 2020 10:33

Drífa Snædal, forseti ASÍ Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alþýðusamband Íslands krefst þess að grunnatvinnuleysisbætur verði hækkaðar um tæpar 29 þúsund krónur og að tekjutengda tímabilið verði lengt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ASÍ.

„Alþýðusambandið hefur um nokkurra missera skeið lagt áherslu á að lögin um atvinnuleysistryggingar verði endurskoðuð í heild sinni. Sú afstaða byggir annars vegar á þeim breytingum sem orðið hafa og eru að verða á vinnumarkaði og skipulagi vinnunnar og hins vegar á þeirri skoðun að mikilvægt sé að fólk í atvinnuleit hafi geti nýtt þann tíma til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði með því að sækja sér menntun eða auka hæfni sína með öðrum hætti.

Alþýðusambandið hefur jafnframt lagt ríka áherslu á að atvinnuleysisbætur verði þegar í stað hækkaðar og tekjutengda tímabilið lengt.

Nú eru grunnbætur úr atvinnuleysistryggingasjóði m.v. fullt starf kr. 289.510 á mánuði (auk þess sem greidd er lág fjárhæð með hverju barni á framfæri yngra en 18 ára). Þá eru tekjutengdar bætur að hámarki kr. 456.404 á mánuði, en þó aldrei hærri en 70% af meðaltali heildarlauna á viðmiðunartímabilinu. Tekjutengdar atvinnuleysisbætur eru lengst greiddar í þrjá mánuði, en þó ekki fyrstu tvær vikur í atvinnuleysi.

Við þær aðstæður sem nú eru uppi á vinnumarkaði og fyrirsjáanlegar eru á næstu misserum er nauðsynlegt að gera breytingar til að forða fólki sem misst hefur vinnuna frá enn verri áföllum en felast í atvinnumissi og því tekjutapi sem honum fylgir.
Í þessu sambandi má einnig benda á að upphæð atvinnuleysisbóta var lengi miðuð við 7. taxta Dagsbrúnar eftir 1 ár. Sambærileg viðmiðun í launataxta verkafólks mundi gefa mun hærri upphæð en nú er. Þá má benda á að grunnbæturnar eru nú ríflega 86% af lágmarkstekjutryggingu skv. kjarasamningi Starfsgreinasambandsins en voru árið 2010 ríflega 95%. Á sama hátt er hámark tekjutengdra atvinnuleysisbóta nú í lágmarki miðað við grunnbæturnar frá því tekjutengingin var tekin upp.

Í ljósi framanritaðs leggur Alþýðusambandi til breytingar m.v. núgildandi lög og upphæðir atvinnuleysisbóta. Um er að ræða hóflegar breytingar sem eru einfaldar og hægt er að hrinda strax í framkvæmd en með því fororði þó að heildarendurskoðun laganna fari fram og þá verði fjárhæðir atvinnuleysisbóta og annar stuðningur úr atvinnuleysistryggingasjóði tekinn til gagngerrar skoðunar með það að markmiði að forða fólki frá tekjufalli.

Tillaga Alþýðusambandsins er eftirfarandi:
Grunnatvinnuleysisbætur verði sem svarar 95% af tekjutryggingu m.v. fullt starf. Sú fjárhæð er í dag kr. 318.250 (þ.e. um 9,9% frá núverandi fjárhæð). Þá verði greiðsla með hverju barni á framfæri yngra en 18 ára hlutfallslega sú sama og í dag.
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur nemi sem næst 70% af meðaltali heildarlauna á vinnumarkaði. Sú fjárhæð er í dag kr. 529.381.
Þá verði dregið úr tekjutengingu þannig að tekjur upp að dagvinnutekjutryggingu skerði ekki tekjutengdra bætur. Sú fjárhæð er í dag kr. 335.000.

Tímabil tekjutengdra atvinnuleysisbóta verði lengt tímabundið úr þremur mánuðum að hámarki í sex mánuði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Evrópa er á fleygiferð

Thomas Möller skrifar: Evrópa er á fleygiferð
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Hún er samsæriskenningasmiður, andstæðingur bóluefna og getnaðarvarna – Nú verður hún landlæknir og aðalráðgjafi Trump

Hún er samsæriskenningasmiður, andstæðingur bóluefna og getnaðarvarna – Nú verður hún landlæknir og aðalráðgjafi Trump
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“

Stjórnarandstaðan pirruð yfir að fá að halda málþófinu áfram fram á nótt – „Hvaða leikrit er í gangi?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Ekki benda á mig, segir sérstakur – ríkissaksóknari rannsakar eigin gjörðir

Svarthöfði skrifar: Ekki benda á mig, segir sérstakur – ríkissaksóknari rannsakar eigin gjörðir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“

Bergþór bergmálar málflutning SFS um ofurlaun í fiskvinnslu – „Þetta eru bara orðin hálauna- og, að miklu leyti, kvennastörf“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Þú veist aldrei með hverjum þú getur fest inni í lyftu

Diljá Mist Einarsdóttir: Þú veist aldrei með hverjum þú getur fest inni í lyftu