fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025
Eyjan

Ellefu aðildarfélög BHM sömdu við ríkið – Kjarasamningur kynntur á næstu dögum

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 3. apríl 2020 14:03

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulltrúar ellefu aðildarfélaga BHM gengu í dag frá undirritun nýs kjarasamnings við ríkið. Efni samningsins verður kynnt félagsmönnum á næstu dögum. Í kjölfarið verður efnt til atkvæðagreiðslu um samninginn meðal félagsmanna hvers félags og er niðurstöðu að vænta eigi síðar en 17. apríl næstkomandi. Gildistími nýs samnings er frá 1. apríl 2019 til 31. mars 2023 samkvæmt tilkynningu.

Samninganefndir ellefu aðildarfélaga BHM stóðu frammi fyrir því að taka afstöðu til tilboðs Samninganefndar ríkisins. Í ljósi fordæmalausrar stöðu í samfélaginu var ákveðið að bera samninginn undir félagsmenn í atkvæðagreiðslu.

BHM- félögin ellefu eru:

Dýralæknafélag Íslands (DÍ)

Félag geislafræðinga (FG)

Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH)

Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN)

Félag lífeindafræðinga (FL)

Félagsráðgjafafélag Íslands (FÍ)

Iðjuþjálfafélag Íslands (IÞÍ)

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH)

Ljósmæðrafélag Íslands (LMFÍ)

Sálfræðingafélag Íslands (SÍ)

Þroskaþjálfafélag Íslands (ÞÍ)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt