fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Eigið fé sjóðs í eigu Gamma úr 4.4 milljörðum í 40 milljónir á einu ári og forstjórinn hættir

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 30. september 2019 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir fagfjárfestasjóðir í eigu GAMMA standa mun verr en ráð var fyrir gert. GAMMA:Novus sjóðurinn var metinn á 4.4 milljarða króna samkvæmt ársuppgjöri 2018, en við nýlegt endurmat er eigið fé aðeins 42 milljónir og var eigið fé því ofmetið duglega. Kjarninn greinir frá.

Frá þessu er lauslega greint á vef Kviku banka, sem keypti GAMMA í fyrra. Þar er einnig greint frá því að Valdimar Ármann hafi hætt störfum sem forstjóri GAMMA og Máni Atlason verið ráðinn sem framkvæmdastjóri.

Hrunið er útskýrt með þeim hætti að raunveruleg framvinda tiltekinna verkefna hafi verið ofmetinn og að uppfærsla kostnaðaráætlana hafi leitt í ljós að byggingarkostnaður reyndist vanmetinn, sem og að horfur um raunhækkun fasteignaverðs hafi lækkað. Verkefni félagsins er þó enn sögð hagkvæm, en helsta eign Novus sjóðsins er Upphaf fasteignafélag slhf. Sem stendur að byggingu hundruða íbúða á höfuðborgrsvæðinu.

Kvika banki keypti GAMMA síðastliðið vor og sendi frá sér tilkynningu til Kauphallar Íslands í dag þar sem greint var frá því að tveir sjóðir í eigu félagsins væru verr staddir en ráð var fyrir gert og skráð gengi þeirra lækkað sem því næmi, þó ekki komi fram hversu mikil lækkunin væri.

Einnig segir að niðurfærslan muni ekki hafa mikil áhrif á afkomu Kviku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar

Willum Þór Þórsson: Íþróttahreyfingin samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið

Fylgi stjórnmálaflokka: Samfylkingin og Miðflokkurinn styrkjast – Sjálfstæðisflokkur og Framsókn áfram á niðurleið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar

Thomas Möller skrifar: Gamlar fréttir og nýjar
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein

Jón Gnarr skrifar: Meitlað í stein
Eyjan
Fyrir 1 viku

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Regína ætlar að hætta sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Sigmundur Davíð borgarstjóraefni? – Miðflokkur á flugi og átök um lista Sjálfstæðisflokksins