fbpx
Laugardagur 05.júlí 2025
Eyjan

Miðflokkurinn bætir við sig fylgi – Píratar missa mest

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 16. maí 2019 11:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um um rúm fjögur prósentustig og mælist nú 40,9% en var 40,4% í síðustu mælingu, samkvæmt nýrri könnun MMR.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist um rúmt prósentustig frá í byrjun mánaðarins og mælist nú 21,3%. Samfylkingin mælist með 13,9% fylgi, sem er nær óbreytt frá síðustu könnun. Þá minnkar fylgi Pírata um rúmlega þrjú og hálft prósentustig en fylgi Miðflokksins hækkar um rúmlega tvö og hálft prósentustig frá síðustu mælingu.

Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 13,9% og mældist 14,1% í síðustu könnun.
Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,2% og mældist 13,4% í síðustu könnun.
Fylgi Miðflokksins mældist nú 11,8% og mældist 9,2% í síðustu könnnun.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,6% og mældist 9,8% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 9,8% og mældist 13,4% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 8,4% og mældist 9,2% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 6,4% og mældist 5,1% í síðustu könnun.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands mældist nú 3,2% og mældist 4,2% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,4% samanlagt.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 978 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 14. til 16. maí 2019

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 81,1% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,8%), myndu skila auðu (5,8%), myndu ekki kjósa (2,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,5%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Kyle Walker í Burnley
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun