fbpx
Fimmtudagur 12.mars 2026
Eyjan

Seðlabankinn lækkar vexti aftur

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 6. nóvember 2019 09:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 3%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í nóvemberhefti Peningamála hafa horfur um hagvöxt á seinni hluta ársins versnað frá því sem spáð var í ágúst. Hagvöxtur á fyrri hluta ársins var hins vegar meiri en spáð var og er því gert ráð fyrir 0,2% samdrætti á árinu öllu eins og í ágúst. Horfur fyrir næsta ár hafa einnig versnað og er nú spáð 1,6% hagvexti.

Verðbólga hefur verið um eða yfir 3% frá því í vor en í október mældist hún 2,8%. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar verið þrálátari. Horfur eru á að verðbólga hjaðni hraðar en spáð var í ágúst og að hún verði komin í markmið undir lok þessa árs. Verðbólguvæntingar hafa haldið áfram að lækka og eru við markmið miðað við flesta mælikvarða. Taumhald peningastefnunnar hefur því aukist lítillega milli funda.
Vextir bankans hafa verið lækkaðir um 1,5 prósentur frá því í vor og eiga áhrif þess enn eftir að koma fram að fullu. Lækkun vaxta hefur stutt við eftirspurn og miðað við spá bankans ætti núverandi vaxtastig að duga til að tryggja verðstöðugleika til meðallangs tíma og fulla nýtingu framleiðsluþátta. Þá mun boðuð slökun í aðhaldi ríkisfjármála leggjast á sömu sveif. Efnahagshorfur gætu hins vegar verið of bjartsýnar, einkum vegna óvissu í alþjóðlegum efnahagsmálum.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.

Vextir verða því sem hér segir:

1. Daglán 4,75%
2. Lán gegn veði til 7 daga 3,75%
3. Innlán bundin í 7 daga 3,00%
4. Viðskiptareikningar 2,75%
5. Bindiskyldar innstæður, meðaltalsuppfyllt 2,75%
6. Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00%

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Skiptar skoðanir á ESB-Silfrinu í gær – „Þessi þáttur af Silfrinu er eins og eitthvað skynfæraofbeldi“

Skiptar skoðanir á ESB-Silfrinu í gær – „Þessi þáttur af Silfrinu er eins og eitthvað skynfæraofbeldi“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Alma Möller: Eðlilegt að Nýi Landspítalinn sjái um spítalaframkvæmdir hér á landi – nýta sérþekkinguna

Alma Möller: Eðlilegt að Nýi Landspítalinn sjái um spítalaframkvæmdir hér á landi – nýta sérþekkinguna
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sigurður Hólmar skrifar: Konan sem lyfti grettistaki fyrir kynslóðir Kársnesbúa

Sigurður Hólmar skrifar: Konan sem lyfti grettistaki fyrir kynslóðir Kársnesbúa
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson á þingi Samtaka iðnaðarins: Afnemum neitunarvald landeigenda – einföldum regluverkið

Jóhann Páll Jóhannsson á þingi Samtaka iðnaðarins: Afnemum neitunarvald landeigenda – einföldum regluverkið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli

Katrín Káradóttir skrifar: Soroptimistar taka þátt í alþjóðlegum baráttudegi kvenna því það skiptir máli
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Leyfist Laufey að vera á dós?

Nína Richter skrifar: Leyfist Laufey að vera á dós?