fbpx
Miðvikudagur 28.janúar 2026
Eyjan

Erla hætt hjá Pírötum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 31. júlí 2019 19:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erla Hlynsdóttir hefur sagt starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri Pírata en starfinu hefur hún gegnt í rúm tvö ár. Þar áður var Erla meðal annars mjög þekktur blaðamaður. Erla segir frá þessum tímamótum í Facebook-færslu. Þar koma ástæður starfslokanna ekki fram og er óljóst hvort þau tengjast ólgunni sem hefur verið innan flokksins undanfarið og hefur komið rækilega fram í fjölmiðlum. Færsla Erlu er svohljóðandi:

Ég hef sagt lausu starfi mínu sem framkvæmdastjóri Pírata. Ég hef unnið með flokknum í gegn um tvennar kosningar, fyrst óvæntar alþingiskosningar og síðan sveitarstjórnarkosningar. Tími minn hjá Pírötum hefur verið afskaplega dýrmætur og ég er þakklát fyrir að hafa verið treyst fyrir þeim mikilvægu verkefnum sem ég hef fengið að sinna. Ég ætla hins vegar ekki að halda því fram að þetta hafi alltaf verið auðvelt. Síður en svo. Það er eiginlega ekki hægt að lýsa hvernig það er að vinna fyrir stjórnmálahreyfingu. En það er alltaf fjör.

Á þeim tíma sem ég starfaði fyrir hreyfinguna hef ég kynnst mörgu einstöku fólki sem ég veit að ég hefði hvergi kynnst annars staðar en hjá Pírötum. Ég hef líka eignast sanna og trausta vini. Ég hef lært afar mikið um lífið, samskipti, stjórnmál, já og ferla. Við skulum aldrei gleyma ferlum! Þvílíkur skóli sem þetta hefur verið, þvílíkt sem ég hef getað lagt inn í reynslubankann.

Á þessum tímapunkti tel ég best að segja þetta gott og leita að nýjum ævintýrum. Ég veit að Píratar verða ekki í vanda að leita uppi sín eigin ævintýr.

Ekki náðist í Erlu við vinnslu fréttarinnar.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Oddvitaslagur Samfylkingar í Reykjavík: Pétur til í 2. sætið en Heiða ekki velt því fyrir sér

Oddvitaslagur Samfylkingar í Reykjavík: Pétur til í 2. sætið en Heiða ekki velt því fyrir sér
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Pólitísk forysta um aðild að ESB

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Pólitísk forysta um aðild að ESB
Eyjan
Fyrir 1 viku

Oddvitaslagur Samfylkingarinnar í Reykjavík: Auðvitað er ég að fara gegn Heiðu með framboði mínu, segir Pétur

Oddvitaslagur Samfylkingarinnar í Reykjavík: Auðvitað er ég að fara gegn Heiðu með framboði mínu, segir Pétur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ingibjörg tilkynnir formannsframboð

Ingibjörg tilkynnir formannsframboð