fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Eyjan

Ungir Píratar þakklátir Andrési Inga

Trausti Salvar Kristjánsson
Fimmtudaginn 22. mars 2018 22:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frá efstu röð til vinstri Hjalti Björn Hrafnkelsson samfélagsmiðlari, Ólafur Hrafn Halldórsson alþjóðarfulltrúi, Huginn Þór Jóhannsson ritari, Vignir Árnason formaður, Sophia Kistenmacher meðstjórnandi, Valborg Sturludóttir varaformaður, Sigmundur Þórir Jónsson gjaldkeri.

Stjórn Ungra Pírata fagnar breiðri samstöðu allra flokka í annarri umræðu á Alþingi um lækkun kosningaaldurs. Verði frumvarpið að lögum lækkar kosningaaldur í sveitarstjórnarkosningum úr 18 árum í 16. Þetta er mikilvægt skref í þágu lýðræðis og aukinnar þáttöku ungs fólks. Breytingin er stór og okkur Unga Pírata hlakkar til að bjóða stóran og glæsilegan hóp ungs fólks á kjörskrá um leið og Alþingi lýkur verkinu. Þátttökulýðræðið er okkar allra og atkvæðagreiðsla þingsins í dag er stórt skref til valdeflingar ungs fólks og aukins lýðræðis í íslensku samfélagi.

Við óskum Andrési Inga Jónssyni, þingmanni VG og fyrsta flutningsmanns breytinganna, sérstaklega til hamingju með frumvarpið og fyrir þetta stóra skref. Þú hefur gert Ísland aðeins Píratalegra.

Í greinargerð frumvarpsins segir: „Verði frumvarpið að lögum munu aldursmörk kosningarréttar í sveitarstjórnarkosningunum 2018 verða við 16 ára aldur í stað 18 ára eins og nú er. Munu þá nærri því 9.000 manns fá tækifæri til að hafa á kjördegi áhrif á mikilvægar ákvarðanir sem varða líf þeirra og umhverfi sem ekki njóta þessara grundvallarréttinda lýðræðisins að óbreyttum lögum.“

Ungir Píratar hvetja þingmenn til dáða og vænta þess að við og aðrar stjórnmálahreyfingar taki vel á móti nýjum kjósendum eftir að frumvarpið verður samþykkt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nýjar ógnir og nýtt RÚV
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“

Svarthöfði skrifar: Mogginn vill leiðrétta mannréttindabrot en bara „hóflega“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Gæsalifur og hvítvín

Óttar Guðmundsson skrifar: Gæsalifur og hvítvín
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Glæsilegur dagur íslenskra kvenna – baráttunni fyrir frelsi og réttlæti lýkur aldrei

Svarthöfði skrifar: Glæsilegur dagur íslenskra kvenna – baráttunni fyrir frelsi og réttlæti lýkur aldrei
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Sægreifarnir læsa klónum í Sýn – væla svo út af fjölmiðlastyrknum

Orðið á götunni: Sægreifarnir læsa klónum í Sýn – væla svo út af fjölmiðlastyrknum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Thomas Möller skrifar: Mælum rétt

Thomas Möller skrifar: Mælum rétt