fbpx
Sunnudagur 09.nóvember 2025
Eyjan

Borgaryfirvöld í Þrándheimi í Noregi vara við hættu á sjálfsmorðsfaraldri meðal barna og unglinga

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 15. maí 2017 19:47

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borgaryfirvöld í Þrándheimi í Noregi hafa sent bréf til foreldra allra grunnskólabarna í skólum borgarinnar vegna aukinnar tíðni sjálfsvíga og sjálfsvígstilrauna undanfarnar vikur meðal unglinga í Þrándheimi. Fjölmargir unglinga sem hafa glímt við sjálfsvígshugsanir og rætt hefur verið við greina frá því að þau hafi horft á framhaldssjónvarpsþættina „13 Reasons Why“ sem sýndir eru á Netflix-sjónvarpsstöðinni og njóta mikilla vinsælda. Þættirnir hófu göngu sína í mars.

Þessir þáttaröð segir frá 17 ára unglingsstúlku sem tekur eigið líf þar sem henni þykir hún sæta einelti. Áður en hún gerir það tilgreinir hún 13 ástæður fyrir ákvörðun sinni með því að tala inn á segulband í alls 13 skipti. Skólafélagar hlusta síðan á þessar upptökur og þannig er sagan að aðdraganda sjálfsvígsins sögð af stúlkunni sjálfri.

Ungmenni í Noregi. Mynd/Getty

Þættirnir hafa valdið deilum þar sem margir telja að áhorf á þá geti hvatt unglinga og jafnvel börn til að fremja sjálfsmorð.  Aðrir fullyrða að þessir þættir fjalli um mikilvæg málefni og ættu í reynd að vera skylduáhorf í skólum.

Í Þrándheimi hafa yfirvöld hins vegar miklar áhyggjur. Síðustu fjórar til fimm vikur hafa stöðugt fleiri unglingar í borginni reynt að taka eigið líf og sumum tekist það.

Við vitum að maí er mánuður þar sem sveiflan í sjálfsmorðstíðninni er oft stígandi upp á við vegna þess að þá eru próf og útskriftir með tilheyrandi álagi. En nú hefur tíðnin verið svo miklu hærri en vanalega þannig að við neyddumst til að bregðast við,

segir Hilde Vikan hjá Þrándheimsborg í samtali við norska dagblaðið Verdens Gang.

Mjög margir framhaldsskólanemendur horfa á þessa þáttaröð [13 Reasons Why] og þau eru upptekin af henni. Við vitum að börn allt niður í fjórða bekk fylgjast með henni. Þessi skilaboð eru því send til allra foreldra í skólum Þrándheims,

segir m. a. í bréfinu sem borgaryfirvöld í Þrándheimi hafa nú sent út.

Borgaryfirvöld Þrándheims hafa nú aukið allan viðbúnað meðal lækna, sálfræðinga, í skólakerfinu og víðar til að reyna að sporna gegn því að faraldur sjálfsmorða fari nú af stað meðal barna og unglinga í borginni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“

Thomas Möller skrifar: Þáttaröðin „Evrópa brennur“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn

Reynir Traustason: Það verður bara að buffa þá, sagði yfirlögregluþjónninn
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis

Reynir Traustason: Sonja var ógleymanleg – í ævilöngu sambandi við Onassis
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum

Fjármál ríkislögreglustjóra: Ítrekuð umframkeyrsla og hallarekstur – verktakagreiðslur hlaupa á milljörðum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna

Nína Richter skrifar: Þessir fokking baráttudagar kvenna