Vinstri grænir eru orðnir stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri könnun MMR. Fengi flokkurinn 27% fylgi ef kosið væri til Alþingis í dag, Sjálfstæðisflokkurinn mælist næst stærstur með 23,8% fylgi.
Stuðningur við ríkisstjórnina mældist 32,6%. Píratar mældust með 13,6% fylgi, Framsóknarflokkurinn mældist með 9,7%, Samfylkingin með 7,8%, Viðreisn með 5,6% og Björt framtíð með 5,3% fylgi. Flokkur fólksins mældist með 3,6% en aðrir flokkar mældust undir 2%.
Vinstri grænir eru búnir að bæta við sig 3,8 prósentustigum frá könnunum í janúar, en Sjálfstæðisflokkurinn hefur minnkað um 0,8 prósentustig sem er innan vikmarka. Fylgi Pírata stendur í stað. Viðreisn tapar rúmu prósenti, Framsóknarflokkurinn missir rúm 3 prósentustig og Björt framtíð rúmt 1,5 prósentustig á milli kannanna. Samfylkingin er hins vegar búin að bæta við sig 0,8 prósentustigi, en það er innan vikmarka.
Könnunin var gerð dagana 1. til 5. febrúar 2017, spurðir voru 983 einstaklingar, 18 ára og eldri, valdir af handahófi úr Þjóðskrá.