„Ég heyrði sagt að þú hefðir keypt banka Jón Hreggviðsson sagði Arneus. Er það rétt?
Jón Hreggviðsson hófst við í sæti sínu og ansaði: Hef ég keypt banka, hef ég ekki keypt banka? Hver hefur keypt banka og hver hefur ekki keypt banka? Hvenær kaupir maður banka og hvenær kaupir maður ekki banka?
Jón Hreggviðsson var aldrei viss um það hvort hann hefði keypt banka eða ekki keypt banka. Það eru engar vísbendingar um að Jón Hreggviðsson hafi keypt banka. Þetta er alveg sama staða og Hauck & Aufhäuser er í dag. Hauck & Aufhäuser keypti ekki banka árið 2003.“
Þetta sagði Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi í hádeginu. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Aufhäuser að kaupum á Búnaðarbankanum var til umræðu á Alþingi í dag. Voru margir þingmenn á þeirri skoðun að skýrslan væri víti til varnaðar, ekki síst í ljósi sölu á 30% hlut í Arion banka til vogunarsjóða. Sagði Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra að hann hefði beðið Fjármálaeftirlitið um svör við 11 spurningum sem lutu að eignarhaldi á þeim sjóðum eða fyrirtækjum sem höfðu keypt hluti í Arion banka:
Í ljósi sögunnar þarf eignarhaldið að vera sannreynt með öllum ráðum. Ég vænti þess að FME svari svo fljótt sem auðið er. Ef ekki koma fram óyggjandi sannanir um það hverjir eru raunverulegir eigendur verður traust á bankakerfinu ekki endurvakið. Fyrir okkur sem samfélag er það líka grundvallaratriði að við getum treyst eftirlitsmönnunum, Fjármálaeftirlitinu og Ríkisendurskoðun,
sagði Benedikt. Svandís Svavarsdóttir þingflokksformaður Vinstri grænna sagði að skýrslan væru þau gögn sem hefði verið eftir til að hefja rannsókn á einkavæðingunni:
Það er meirihluti á Alþingi um að hefja rannsókn á einkavæðingunni þótt formaður stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar og formaður Sjálfstæðisflokksins séu andsnúnir slíkri rannsókn,
sagði Svandís og vísaði til ummæla Brynjars Níelssonar formanns stjórnskipunar-og eftirlitsnefndar.
Sjá frétt: Brynjar: Það þarf að vera tilefni ef það á að rannsaka
Sagði Svandís að almannahagsmunum hefði verið varpað fyrir róða, blekkingum verið beitt með skipulögðum hætti og fjármunum stolið frá almenningi. Nú yrði feluleiknum að ljúka og það væri þingsins að draga lærdóm, spyrja pólitískra spurninga og ákveða um næstu skref:
Hverjir gættu almannahagsmuna þá og hverjir gæta þeirra nú?