Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segist hafa reynt það sem hún gat til að mynda fimm flokka stjórn, bæði með Viðreisn og með Framsóknarflokknum, en það hafi ekki gengið. Sagði hún á flokksráðsfundi Vinstri grænna í Mosfellsbæ í morgun, sem greint er frá í Morgunblaðinu í dag, að mest hafi borið á milli síns flokks og Viðreisnar, þegar ljóst hafi verið að ekki var hægt að mynda fimm flokka stjórn Vinstri grænna, Pírata, Samfylkingar, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar hafi hún reynt að fá Framsóknarflokkinn inn í viðræðurnar en það hafi ekki gengið:
Það gekk hins vegar ekki upp, meðal annars vegna þess að bandalag Bjartrar framtíðar og Viðreisnar varð ekki sundur slitið.
Katrín hefur víða verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki náð að mynda fimm flokka stjórn, sagði hún strax eftir kosningar að slík stjórn væri í forgangi en lítill áhugi var á myndun slíkrar stjórnar meðal þingmanna VG. Katrín ræddi einnig möguleika á að mynda stjórn með Sjálfstæðisflokknum en hún segir að of langt hafi verið á milli flokkanna þegar kæmi að tekjuöflun ríkisins. Sagði hún á fundinum í morgun að VG hafi ekki viljað fara í stjórn nema ná fram sínum stefnumálum í uppbyggingu innviða.
Á endanum hafi þriggja flokka stjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar orðið ofan á, segir Katrín að sú stjórn hafi legið í loftinu allan tímann:
Aftur var reynt við fimm flokka viðræður en segja má að niðurstaðan sem varð: Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar hafi legið í loftinu allan tímann.