fbpx
Laugardagur 21.febrúar 2026
Eyjan

Helgi Hrafn fer, Smári kemur

Egill Helgason
Föstudaginn 1. júlí 2016 08:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Píratar telja væntanlega að málefni gangi fyrir mannvali, en það er nú samt svo að allir stjórnmálaflokkar þurfa að hafa gott og helst framúrskarandi fólk í liði sínu. Sú ákvörðum Helga Hrafns Gunnarssonar að gefa ekki kost á sér til þingsetu veikir Píratahreyfinguna mikið og dregur úr möguleikum hennar að sigra stórt í kosningunum í haust. Að sama skapi eru þetta góð tíðindi fyrir ríkisstjórnarflokkana sem losna við einn sinn skæðasta andstæðing.

Helgi Hrafn er einfaldlega sá Pírati sem nýtur mestra vinsælda og trausts. Það hefur hann áunnið sér með framgöngu sinni á þingi og í fjölmiðlum. Hann talar ætíð skýrt og málefnalega, kynnir sér hlutina vel, kemur á óvart með því að fara ekki hefðbundnar leiðir. Getur jafnvel skipt um skoðun – sem er mikilsverður eiginleiki. Helgi á mjög stóran þátt í vinsældum Pírata.

Ákvörðun hans virkar satt að segja hálf óskiljanleg, hann segist ætla að helga sig grasrótarstarfi í flokknum, svo varla er hann orðinn alveg afhuga pólitík. Það gæti farið svo að Píratarnir taki einfaldlega við stjórn landsins í haust, þá hljóta þeir að þurfa að hafa innan um reynt fólk á þingi, fólk sem er búið að læra á kerfið, fólk sem er hlustað á þegar það talar.

Það eru reyndar góð tíðindi fyrir Píratana að Smári McCarthy ætli að bjóða sig fram í kosningunum, hann sækist eftir fyrsta sæti í Suðurkjördæmi, enda upprunninn í Vestmannaeyjum. Smári hefur starfað víða erlendis síðustu árin, en hann er klár maður, víðsýnn og vel að sér – hann er náttúrlega einn af stofnendum flokksins og einn helsti hugmyndafræðingur hans.

 

f88db0f110-380x228_o

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum

Jóhann Páll Jóhannsson: Það þurfti að koma Sjálfstæðisflokknum úr ríkisstjórn til að komast áfram í útlendingamálum og orkumálum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur

Erna Bjarnadóttir skrifar: Landbúnaður og ESB: Sérlausnir eru ekki undanþágur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Planið er að virka – spyrjið bara Fitch!

Orðið á götunni: Planið er að virka – spyrjið bara Fitch!
Eyjan
Fyrir 1 viku

Formannsslagur í Framsókn: Síðasta ríkisstjórn fjárfesti gríðarlega í innviðum, segir Lilja Alfreðsdóttir

Formannsslagur í Framsókn: Síðasta ríkisstjórn fjárfesti gríðarlega í innviðum, segir Lilja Alfreðsdóttir