fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Eyjan

Old Spice í glugganum hjá Geysi

Egill Helgason
Föstudaginn 30. desember 2016 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessa ljósmynd tók Kristján Frímann inn um gluggann á Geysi fyrir fjörutíu árum og birtir hana undir textanum: Allt fyrir herrann í Geysi 1976. Kristján gaf mér leyfi til að birta myndina.

Þessum Geysi ber ekki að rugla við Geysi sem nú er á Skólavörðustíg. Búðin var á horni Aðalstrætis og Vesturgötu, þar sem nú er m.a. Hönnunarmiðstöð Íslands. Verslunin starfaði til 1992, en þá keypti borgin húsið og lét gera það upp. Var þá meðal annars fjarlægð forskalning sem var utan á húsinu.

Í Geysi fékkst nokkuð alþýðlegur fatnaður, ekki sérlega dýr, en í búðinni voru einnig seld veiðarfæri og fleira slíkt. Í gluggaútstillingunni frá 1976 eru náttsloppar og náttföt mest áberandi, bæði á drengi og herra, en það sem vekur ekki síst athygli er rakspírinn sem er stillt út neðst á myndinni.

Þarna má sjá hinn eina sanna Old Spice í gjafaöskju. Þetta var ilmur sem karlmenn eftirstríðsáranna notuðu – hann var að sönnu nokkuð einstakur. Má jafnvel segja að hann hafi verið ágengur. En til hægri á myndinni má sjá hvernig annar rakspíri, Tabac, sækir á. Hann er ekki eins eftirminnilegur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Lögregla rúin trausti
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra málsháttamálið

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra málsháttamálið
Eyjan
Fyrir 1 viku

Diljá Mist Einarsdóttir: Umræðan um sjávarútveg stjórnast af tilfinningum – verðum að vanda okkur, líka auglýsingarnar

Diljá Mist Einarsdóttir: Umræðan um sjávarútveg stjórnast af tilfinningum – verðum að vanda okkur, líka auglýsingarnar