fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Eyjan

Góða fólkið og nasistar í borgarstjórn

Egill Helgason
Miðvikudaginn 23. september 2015 07:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Núorðið eru borgar-og bæjarmál afskaplega lítið pólitísk. Það var dálítið öðruvísi hér í Reykjavík á árum áður þegar borgin var kjarninn í valda- og aðstöðukerfi Sjálfstæðisflokksins og síðan um tíma eftir að R-listinn vann borgina og var þá einhvers konar forskrift að sameiningu vinstri afla (sem á endanum mistókst).

En málefni borga- og bæja snúast að mestu um hluti sem flestir eru sammála um að þurfi að vera í lagi – það er voða lítið svigrúm fyrir annað. Skóla, velferð, sorphirðu, götur. Það getur svosem verið ágreiningur um flugvöll, einstaka umferðarmannvirki og þéttingu byggðar, en í þetta eru ekki mál sem eru pólitísk, þ.e. skoðanirnar á þeim ganga þvert á flokka. Að sumu leyti er fáránlegt að í bæjarstjórnum séu meirihlutar- og minnihlutar sem reyna að leika hefðbundna pólitík – einatt kemur það bara afkáralega út.

Því er ekki skrítið að uppi verði fótur og fit þegar borgarfulltrar geta loks læst klónum í almennilegt pólitískt hitamál sem fjölmiðlar kynda rækilega undir. Og það meira að segja mál sem hefur þann eiginleika að hleypa grandvarasta fólki í algjöran trylling á svipstundu.

Og í borgarstjórn hefur ekki verið svona mikill hiti í áratugi, maður fær ekki betur séð en að borgarfulltrúar hafi nánast verið eins og umskiptingar, að minnsta kosti ef marka má þessa frásögn Stundarinnar:

Þið teljið að þið séuð ekki nasistar af því þið séuð góða fólkið.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins

Dagur B. Eggertsson: Þurfum að bregðast við gagnrýni Mannréttindadómstólsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar

Sigmundur Ernir skrifar: Okkur fækkar og okkur fjölgar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna

Reynir Traustason: Ég ætla ekki að berja þig, Sveinn Andri, ég kæri þig til siðanefndar lögmanna
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins