fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Eyjan

Rýnt í fylgi flokkanna – Unga fólkið snýr baki við Miðflokknum og Austurland flýr frá Samfylkingunni yfir í faðm Sjálfstæðisflokksins

Eyjan
Þriðjudaginn 24. mars 2026 12:11

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt könnunum Maskínu á fylgi flokkanna hefur fylgi Miðflokksins dalað lítillega undanfarna mánuði. Einkum hefur flokkurinn tapað vinsældum hjá yngstu kjósendum á aldrinum 18-29 ára. Hjá þeim aldurshóp mælist fylgið í dag 14,9 prósent en í janúar náði það hæstu hæðum í 24,4 prósentum. Heildarfylgi flokksins mælist nú 18,4 prósent, en flokkurinn virðist marktækt höfða meira til karla en kvenna, en 24,9 prósent karla sögðust ætla að kjósa flokkinn en aðeins 11,4 prósent kvenna. Eins er flokkurinn töluvert vinsælli á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu og vinsælli meðal fólks sem er með yfir milljón á mánuði í tekjur heldur en hjá þeim sem eru tekjulægri.

Samfylkingin mælist áfram með mest fylgi allra flokka en dregið hefur þó úr fylginu sem mældist 27 prósent hjá Maskínu í janúar en mælist nú 25,5 prósent. Þegar tölurnar eru rýndar er Samfylkingin að tapa fylgi í borginni, en þar mældist flokkurinn með 35,7 prósent í janúar en mælist nú með 28,7 prósent. Á sama tíma er flokkurinn að bæta við sig fylgi hjá nágrannasveitarfélögum borgarinnar en þar hefur það farið úr 21,8 prósentum í janúar upp í 26,7 prósent nú í mars. Fylgi Samfylkingarinnar á Austurlandi hefur svo hrapað úr 34,9 prósentum í janúar niður í 15,1 prósent í mars, en íbúar í þeim landshluta hafa greinilega snúið sér til Sjálfstæðisflokksins þar sem fylgið mælist nú 27 prósent en mældist aðeins 8,3 prósent í janúar.

Þegar rýnt er í tölurnar má sjá fleiri breytingar, eins og hvernig Sjálfstæðisflokkurinn er á miklu flugi á Suðurlandi og Reykjanesi, Viðreisn er á miklu flugi hjá yngstu kjósendunum, Framsókn tekur dýfu á Austurlandi og bætir við sig fylgi hjá tekjuhærri hópum en tapar á sama tíma fylgi hjá tekjulægri .

Á myndinni fyrir neðan má sjá mælingar Maskínu fyrir janúar annars vegar og svo nýjustu mælinguna fyrir mars. Rétt er að gera þann fyrirvara að úrtakið í janúar var töluvert minna en úrtakið í mars.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?

Jón Gnarr skrifar: Hvað er sannleikur?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir