fbpx
Miðvikudagur 25.mars 2026
Eyjan

Flóttamenn, Moggalínan og ríkisstjórnin

Egill Helgason
Þriðjudaginn 1. september 2015 09:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Davíð Oddsson gefur tóninn varðandi flóttamenn í nokkuð einkennilegum leiðara í Morgunblaðinu í gær. Þar talar hann um „flóttamannasprengju“ og gefur í skyn að hann viti eitthvað meira en aðrir um orsakir hennar.

Nú? Maður hélt að þeirra væri að leita í hinni fáránlegu herför í Írak þar sem Íslendingar voru settir í hóp viljugra þjóða og sérstakra stuðningsaðila. Var það ekki þessi innrás sem hleypti öllu í bál og brand í Írak og síðar Sýrlandi með þeim afleiðingum meðal annars að hálf sýrlenska þjóðin er lögð á flótta?

Leiðarahöfundurinn, og fyrrverandi forsætisráðherra, talar um að í flóttamannamálunum sé Íslendingum „stefnt á kaf í upplausn“.

Það er náttúrlega hægt að ræða lengi um menn sem fá ekki skilið afleiðingar gerða sinna og eru kannski blindir á þær, en svo má líka velta fyrir sér hvaða áhrif þessi skrif hafa á stjórnarflokkana og ríkisstjórnarinnar. Davíð hefur verið talinn helsti skuggastjórnandinn á þeim bæ.

Uppi eru háværar kröfur á Íslandi um að taka við miklum fjölda flóttamanna, margfalda töluna sem hefur verið ákveðið að bjóða hingað til lands. Mörgum þykir þetta einfaldlega sjálfsagt mál til að bjarga fólki sem er í bráðum lífsháska. Um þetta er fjallað í grein sem birtist í gær á hinum víðlesna vef Buzzfeed.

En nú er Mogginn semsagt búinn að setja sig upp á móti þessu – og það er ljóst að í kjósendahópi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er fullt af fólki sem er á þeirri línu, vill ekki sjá fleiri flóttamenn og er jafnvel mikið niðri fyrir vegna þess.

Það verður forvitnilegt að sjá hvernig ríkisstjórnin ber sig að í þessu hitamáli. Ráðherrar hafa farið frekar varlega í að tjá sig. Í dag á víst að skipa ráðherranefnd um flóttamannaaðstoð. Hún hefur ekki mikinn tíma til að vinna.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Haraldur Ólafsson: ESB er ekki fyrir Jón Gnarr 

Haraldur Ólafsson: ESB er ekki fyrir Jón Gnarr 
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning

Sigmundur Ernir skrifar: Hræðslubandalagið óttast góðan samning
Eyjan
Fyrir 1 viku

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn

Andri Þór Guðmundsson: Íslendingar gera betur við sig en ferðamenn