fbpx
Laugardagur 28.mars 2026
Eyjan

Kópavogsfundurinn, ha?

Egill Helgason
Miðvikudaginn 17. júní 2015 12:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kópavogsfundurinn 1851, nei, Guðni, það var Þjóðfundurinn.

Kópavogsfundurinn var haldinn 1662 og hann var sannarlega sorglegur því þá undirgengust Íslendingar einveldi Danakonungs. Þetta var tími einveldiskonunga hvarvetna í álfunni. Og sagt var Árni Oddsson lögmaður að  hefði grátið þegar hann skrifaði undir eiðstafinn – það kann þó að vera síðari tíma þjóðsaga.

Í Kópavogi, rétt hjá Hafnarfjarðarveginum, stendur steinn til minningar um þetta.

Þjóðfundurinn var haldinn á Sal hins nýbyggða Menntaskóla í Reykjavík 1851. Þar höfnuðu Íslendingar, undir forystu Jóns Sigurðssonar, afar frjálslyndri og framfarasinnaðri stjórnarskrá sem var verið að innleiða í Danmörku í kjölfar falls einveldisins.  Sú stjórnarskrá var undir áhrifum frá frelsishreyfingum á fyrri hluta 19. aldar, byltingunum 1830 og 1848.

En Íslendingar gátu ekki sætt sig við stjórnarskrá þar sem þeir voru hluti af danska ríkinu – þeir töldu að þeir heyrðu einungis undir Danakonung. Það er alls ekki útilokað að Íslendingum hefði vegnað betur með nýju stjórnlögunum, en þeir völdu að fara aðra leið.

Þannig að þetta var allt pínu þvælið.

url-26

Á upplýsingavef um Kópavog má lesa þennan texta um helsta sögulega atburð sem hefur orðið þar í bæ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Heiða Kristín Helgadóttir: Leikrit sem þingmenn setja upp til að ná í gegn

Heiða Kristín Helgadóttir: Leikrit sem þingmenn setja upp til að ná í gegn
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Málfarspistill

Björn Jón skrifar: Málfarspistill
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur

Þorsteinn Pálsson skrifar: Stjórnvöld ættu að hafa alvarlegar áhyggjur
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“

„Við munum vinda ofan af þessu bakslagi“