fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Klerkarnir, meintir andstæðingar kirkjunnar, bænir og ofsóknir

Egill Helgason
Sunnudaginn 17. ágúst 2014 22:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hún er fremur nöturleg sýnin sem birtist inn í hugarheim prestanna Hjámars Jónssonar og Ólafs Jóhanns Borgþórssonar.

Báðir hafa þeir undanfarna daga talað um „andstæðinga kirkjunnar“.

Hverjir eru andstæðingar kirkjunnar – á kirkja yfirleitt andstæðinga? Hvað þá þjóðkirkja sem er haldið upp af skattfé, sem skírir, fermir og giftir stóran hluta landsmanna og hjálpar til að koma langflestum í gröfina?

Eru það andstæðingar kirkjunnar sem vilja skilja á milli ríkis og kirkju? Eða þeir sem ekki eru í þjóðkirkjunni – eru þeir andstæðingarnir?

Nei – það þarf alls ekki að vera. Margir myndu einmitt halda að samkrull ríkisvalds og trúar sé ekki heppilegt, hvorki fyrir ríkið né trúna. Það er er jafnvel líklegt að sumir sem eru þeirrar skoðunar séu velviljaðir kirkjunni.

Prestarnir leggja þetta upp sem einhvers konar stríð. Annar þeirra, Hjálmar, gekk reyndar svo langt í stólræðu í Dómkirkjunni að tala þannig að það er eins og hann leggi að jöfnu að hætt sé að fara með morgunbænir í útvarpi á Íslandi og ofsóknir gegn kristnum mönnum í Miðausturlöndum.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum

Íris og Páll hætta bæði í Eyjum
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?

Orðið á götunni: Ráðning Bjarna rauð dula framan í verkalýðshreyfinguna – Á að breyta Samtökum atvinnulífsins í fjölskyldufyrirtæki Engeyinga?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi