fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
Eyjan

Snjallt heiti Viðreisn

Egill Helgason
Laugardaginn 3. maí 2014 18:43

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er býsna glúrið hjá stofnendum nýs alþjóðasinnaðs hægri flokks að kenna sig við Viðreisn.

Í hugum á hægri vængnum hefur Viðreisnarstjórnin yfir sér gyllta áru. Hún dró úr höftum sem þjakað íslenskt efnahagslíf á árunum eftir stríð og fram á sjöunda áratuginn.

Hún sat frá 1959 til 1971, fyrst var Ólafur Thors forsætisráðherra, síðar Bjarni Benediktsson og undir lokin Jóhann Hafstein. Helsti leiðtogi Alþýðuflokksins, sem myndaði stjórnina með Sjálfstæðisflokki, var Gylfi Þ. Gíslason – mikill talsmaður viðskiptafrelsis og alþjóðasamvinnu.

Viðreisnarstjórnin var þannig mjög umbótasinnuð – og það var á tíma hennar að Ísland gekk í viðskiptabandalagið EFTA. Hún hvikaði aldrei frá varnarsamstarfinu við Bandaríkin og verunni í Nató – þegar vinstri stjórn tók við 1971 hafði hún á stefnuskrá að segja upp varnarsamningum.

Það er gróið inn í sögu Sjálfstæðisflokksins að Viðreisn hafi verið afar góð – kannski besta ríkisstjórn Íslands. Hægri sinnaðir kratar hafa líka séð þetta samstarf í hillingum.

En að sama skapi er þetta nafn líklegt til að fara í taugarnar á þeim sem má kalla flokkseigendur í Sjálfstæðisflokknum.

Vireisn

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Foringjakreppa í flokknum

Óttar Guðmundsson skrifar: Foringjakreppa í flokknum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Lára Björg ráðin verkefnastjóri miðlunar og samskipta hjá Háskólanum í Reykjavík 

Lára Björg ráðin verkefnastjóri miðlunar og samskipta hjá Háskólanum í Reykjavík 
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Raunverulegur tilgangur málþófsins – andspyrnuhópur vill skipta um formann

Orðið á götunni: Raunverulegur tilgangur málþófsins – andspyrnuhópur vill skipta um formann
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn

Segir stjórnarandstöðuna vannýtta auðlind og vill „lottóvæða“ þingmenn
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Skortur á manngildishugsjón

Björn Jón skrifar: Skortur á manngildishugsjón
Eyjan
Fyrir 1 viku

Flutti sögulega jómfrúarræðu á Alþingi í gær og fetaði í fótspor móður sinnar

Flutti sögulega jómfrúarræðu á Alþingi í gær og fetaði í fótspor móður sinnar