fbpx
Fimmtudagur 10.júlí 2025
Eyjan

Bætir varla stöðuna að skipta Halldóri út

Egill Helgason
Miðvikudaginn 21. maí 2014 12:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er merkileg örvænting sem felst í því að láta sér detta í hug að skipta Halldóri Halldórssyni út sem efsta manni á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, nú þegar aðeins rúm vika er til kosninga, eins og mbl.is segir að sé rætt fundi Varðar, fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, nú í hádeginu.

Halda menn að Júlíus Vífill Ingvarsson, sem er í öðru sæti, myndi afla meira fylgis?

Halldór var sóttur vestur á Ísafjörð til að leiða listann í Reykjavík. Öfl innan flokksins vildu vera örugg um að fá einhvern sem vildi hafa Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni – og um leið var Gísla Marteini Baldurssyni og síðar Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur skákað til hliðar.

Halldór er farsæll sveitarstjórnamaður, en nánast alveg óþekktur í Reykjavík. Hann hefur unnið sér það til óhelgis gagnvart nokkrum hluta Sjálfstæðisflokksins að ljá máls á aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Það virðist vera að sýna sig að flugvallarmálið er ekkert sérlega vel fallið til atkvæðaveiða, eins og sést á gengi Framsóknar og flugvallarvina. Borgarbúar eru að hugsa um ýmislegt annað þegar þeir kjósa. Stór áhrifavaldur eru persónulegar vinsældir Dags B. Eggertssonar og  það að meirihlutinn sem starfaði undir forystu Jóns Gnarrs nýtur mikils álits meðal Reykvíkinga. Því verður ekki breytt snögglega fyrir kosningar.

06925375a5-381x230_o

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Lára Björg ráðin verkefnastjóri miðlunar og samskipta hjá Háskólanum í Reykjavík 

Lára Björg ráðin verkefnastjóri miðlunar og samskipta hjá Háskólanum í Reykjavík 
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Sundruð stjórnarandstaða – umboðslausir þingflokksformenn

Orðið á götunni: Sundruð stjórnarandstaða – umboðslausir þingflokksformenn