Það er merkilegt að fylgjast með ferðum flutningaskipsins Alma sem er að flytja hvalkjöt til Japan. Málið er afar viðkvæmt, eins og lesa má í pistli Önnu Kristjánsdóttur vélstýru sem sjálf vann í tuttugu ár á sjó. Anna segir að skipið sé að sigla suður með ströndum Afríku og fyrir Góðravonahöfða. Það sé afar sjaldgæft með skip sem sigli til Asíu, slíkt gerist helst ef skip flytja varning eins og vopn og kjarnorkuúrgang.
Anna telur að þetta sé til marks um að áróðursstríðið um hvalveiðar sé tapað – ef menn þurfi að fara að þessu eins og þjófar á nóttu.
Fyrir tæpri viku síðan lagði frystiskipið Alma sem skráð er á Kýpur úr höfn í Hafnarfirði áleiðis til Japan. Þeir þorðu ekki að fara í gegnum Suez og alls ekki í gegnum Panama. Yfirvöld í Egyptalandi og Panama eru sennilega talin vera á móti flutningum á hvalkjöti um þeirra yfirráðasvæði. Ákvörðunarhöfnin er ekki gefin upp, en skipið siglir suður með ströndum Afríku og var á fimmtudagskvöldið á siglingu vestan Kanaríeyja. Þess var vandlega gætt að breyta stefnunni svo skipið færi ekki inn fyrir 12 mílna landhelgina, en um leið komið var framhjá eyjunum var stefnunni breytt örlítið og farið nær ströndum Afríku á leiðinni í hitabeltið. Það lítur út fyrir að farmurinn sé stórhættulegur, geislavirkur eða eitthvað enn verra. Það er þó ekki svo. Farmurinn er hvalkjöt. Þarf virkilega að flytja hvalkjöt fleiri þúsund aukalega kílómetra til að koma því á markað í Japan? Skipið er látið sigla í gegnum hitabeltið, yfir miðbaug og suður fyrir Góðrarvonarhöfða og síðan aftur yfir miðbaug á leiðinni yfir Indlandshafið. Það er engum að treysta og þar eru spönsk og egypsk yfirvöld meðtalin. Eins gott að ekkert bili í frystikerfum skipsins á þessari sjóðheitu siglingaleið.