fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Eyjan

HhhH og Harry Quebert – tvær frábærar bækur úr frönsku

Egill Helgason
Fimmtudaginn 13. febrúar 2014 12:28

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tvær bækur úr hinum frönskumælandi heimi eru nú meðal hinna vinsælustu á Íslandi.

Þar er annars vegar bókin sem heitir því einkennilega nafni HhhH, þetta er komið úr þýsku og útleggst: Heili Himmlers heitir Heydrich.

Bókin fjallar um eitt mesta illmenni sögunnar, ljóshærða djöfulinn Reinhard Heydrich, hinn stórvirka böðul sem öðrum fremur skipulagði Helförina – en gekkst í leiðinni upp í að þykjast fágaður, var skylmingameistari og lék á fiðlu.

Í bókinn er sagt frá morðinu á Heydrich í Prag 1942, tilræðismönnunum, þeim sem aðstoðuðu þá – flestir tíndu lífinu – og manninum sem sveik þá. Og loks fáum við svo að vita um hinar hyllilegu hefndaraðgerðir vegna morðsins.

Þetta er ekki einföld frásögn, heldur er höfundurinn, Laurent Binet, sífellt að velta fyrir sér hvernig hann eigi að segja söguna, hann er að semja sögulega skáldsögu á sama tíma og hann segist ekki kæra sig um slíkar bókmenntir. Útkoman er magnað bókmenntaverk í afbragðs góðri þýðingu Sigurðar Pálssonar.

HHhH-175x276[1]

 

Hins vegar er það Sannleikurinn um mál Harrys Quebert eftir ungan Svisslending sem heitir Joel Dicker. Bókin hefur náð margfaldri metsölu í hinum frönskumælandi heimi, en í maí er hún væntanleg í Bretlandi og Bandaríkjunum. Bjartur gefur hana út í þýðingu Friðriks Rafnssonar.

Þetta er morðsaga, en líka mynd af smábæ í Bandaríkjunum sem minnir dálítið á Twin Peaks og í þokkabót er þarna bókmenntaleg ráðgáta.

Það eru eilífar vendingar í frásögninni, þegar maður heldur að hún hjóti að vera búin tekur sagan undir sig stökk og allt í einu sér maður atburðina í allt öðru ljósi. Bak við leynist glæpur sem mann grunaði alls ekki að væri glæpur.

Þetta er semsagt bókmenntalegur þriller, heilar 700 blaðsíður að lengd, en þess eðlis að maður getur ekki hætt að lesa, heldur flettir maður látlaust áfram út að bókarlokum og vill þá helst fá meira.

Sannleikurinn_um_mál_HQ_newrender[1]

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Julian McMahon látinn

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið

Bryndís sagði málþóf séríslenskt fyrirbæri og taldi rétt að beita 71. grein – Undirbýr nú 32. ræðu sína um veiðigjaldið
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 

Sara tekst á við nýtt verkefni -„Það er óhætt að segja að ég sé glöð og hissa“ 
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“

Ný vonarstjarna Demókrata gæti komist í mikilvægt embætti – Trumpistar kalla hann „hryðjuverkamann“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni

Veiðigjaldafrumvarpið: Harðlínumennirnir hafa undirtökin innan SFS – málflutningurinn heldur ekki vatni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar

Nína Richter skrifar: Uppáhalds afsökunin okkar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun

Svarthöfði skrifar: Falsfréttir og væl virka ekki – málatilbúnaði Sjálfstæðisflokksins hafnað í nýrri könnun