Það er forvitnilegt að skoða mikla könnun sem gerð var á trú og trúarviðhorfum í heiminum – ekki síst í ljósi ræðu sem Brynjar Níelsson alþingismaður flutti í Seltjarnarneskirkju á nýársdag.
Brynjar segir að verið sé að stuðla að afkristnun þjóðarinnar og þar með upplausn samfélagsins.
Könnunin, sem gerð var af WIN-Gallup á árunum 2005-2012 og kallast Global Index of Religiosity and Atheism, leiddi í ljós að Íslendingar væru níunda trúlausasta þjóð í heiminum.
Frá 2005 höfðu orðið miklar breytingar í hlutfalli þeirra sem telja sig trúaða, þeim fækkaði um 17 prósentustig á Íslandi. Ennþá meira var fallið reyndar á Írlandi, þar fækkaði hinum trúuðu um 22 prósentustig. Fáir myndu halda því fram að trúin hafi verið afl til góðs á Írlandi – írska kirkjan verður seint borin saman við hina fremur mildu og afskiptalitlu íslensku þjóðkirkju.
En íslenska kirkjan hefur náttúrlega átt í ýmiskonar vanda – það getur verið ein skýring þess að trúuðum hefur fækkað svo. Brynjar vill meina að þarna sé um að kenna ófrægingarherferð gegn kristni. En þeir sem hann telur standa fyrir henni voru náttúrlega ekki við völd fyrr en undir lok tímabilsins sem könnunin nær yfir.
Athyglisvert er að skoða listann yfir hvaða lönd eru trúlausust og hvar trúin er sterkust.
Trúlausustu löndin eru: Kína, Japan, Tékkland, Frakkland, Suður-Kórea, Þýskaland, Holland, Austurríki, Ísland, Ástralía og Írland.
Trúuðustu löndin eru: Ghana, Nígería, Armenía, Fiji, Makedónía, Rúmenía, Írak, Kenýa, Perú og Brasilía.
Þarna sést að greinileg fylgni er milli trúleysis og velmegunar. Trúuðu löndin eru fátæk og vanþróuð, en löndin þar sem trúleysi breiðist út eru í hópi hinna ríkustu í veröldinni. Evrópuríkin þar sem trúin er sterkust eru hin fátækustu í álfunni.
Menn geta svo skýrt það eftir sínu höfði. Sumir segja að með velmegun losni fólk við gamla hleypidóma. Aðrir myndu kannski segja að fólk í ríkum löndum hafi orðið efnishyggju að bráð.